Sveitarstjórn

166. fundur 24. febrúar 2026 kl. 14:00 - 15:30 Í ráðhúsniu
Nefndarmenn
  • Anna Karen Úlfarsdóttir oddviti
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
Starfsmenn
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
  • Arnar Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2025-2037 - Lýsing - S2506005

 

Eyjafjarðarsveit óskar umsagnar sveitarstjórnar um vinnslutillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037 og er umsagnarfrestur til 5. mars. nk.

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við framlagða vinnslutillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.

 

   

2.

Bakkatún 43 L239163 - fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi lóðar - S2602007

 

Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Bakkatúns 43 en málsaðili hefur áhuga á að byggja 283 m² parhús á einni hæð sbr. meðfylgjandi teikningu. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að byggja 400 m² einbýlishús á tveimur hæðum á lóðinni.

 

Sveitarstjórn felur skipulags- og byggingafulltrúa að ræða við málsaðila í samræmi við umræður á fundinum.

 

   

3.

Brautarhóll (L152883) - fyrirspurn um skipulagsmál - S2602001

 

Fyrirspurn um skipulagsmál frá kaupendum jarðarinnar Brautarhóls L152883 sem hafa áhuga á að breyta hlöðunni á jörðinni í bifvélaverkstæði.

 

Sveitarstjórn felur skipulags- og byggingafulltrúa að kalla eftir frekari gögnum.

 

   

4.

Svalbarðseyrarvegur 9 - S2602012

 

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur lokið við skráningu á lóðinni Svalbarðseyrarveg 9 í fasteignaskrá. Sveitarstjórn fer yfir næstu skref.

 

Sveitarstjórn felur skrifstofustjóra að afla frekari gagna.

 

   

5.

Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga - S2602011

 

Erindi frá tilnefningarnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga. Tilnefningarnefndin mun taka við framboðum til stjórnar og varastjórnar og gera tillögu til aðalfundar. Framboð skulu send nefndinni fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 27. febrúar n.k.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

6.

Atvinnu- og umhverfismálanefnd - 3 - 2602008F

 

Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.

 

   

7.

Fundargerðir stjórnar Norðurorku - S2202007

 

Fundargerð stjórnar Norðurorku nr. 319 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

8.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 105 og 106 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Á 105. afgreiðslufundi var bókað eftirfarandi tengt Svalbarðsstrandarhreppi:

1. Tjarnartún 12 - Einbýlishús 2022 - 2204011
Erindi dagsett 16.12.2025 þar sem Björn Sveinsson f.h. eiganda sækir um breytingu á
áður samþykktum teikningum af einbýlishúsi á lóðinni Tjarnartún 12,
Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir frá Birni Stefánssyni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.


2. Helgafell - Umsókn um byggingarheimild - S2511001
Erindi dagsett 03.11.2025 þar sem Alkemia ehf. sækir um byggingaráform og
byggingarleyfi fyrir þremur smáhýsum á lóðinni Helgafell, Svalbarðsstrandarhreppi.
Erindinu fylgja uppdrættir frá Vilhjálmi Ægi Vilhjálmssyni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

4. Kotabyggð 7 - Umsókn um byggingarheimild - S2509012
Erindi dagsett 19.09.2025 þar sem Höfðahús-íbúðafélag ehf. sækir um byggingaráform og
byggingarleyfi vegna viðbyggingar og breyttrar notkunar á frístundarhúsi á lóðinni
Kotabyggð 7, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir frá Ríkharði Oddsyni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdarlista.

Á 106. afgreiðslufundi var bókað eftirfarandi tengt Svalbarðsstrandarhreppi:

1. Svalbarðseyrarvegur 11 - Umsókn um byggingarheimild - S2512008
Erindi dagsett 09.12.2025 þar sem Míla ehf. sækir um byggingarleyfi til niðurrifs á
tækjahúsi á lóðinni Svalbarðseyrarvegur 11, Svalbarðsstrandarhreppi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki
byggingarinnar verði fjarlægð.
Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt
byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.

4. Kotabyggð 6 - Umsókn um byggingarleyfi - S2602010
Erindi dagsett 16.02.2026 þar sem Donald Kári Kelley sækir um byggingarleyfi vegna
breyttrar notkunar á frístundahúsi í einbýlishús. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valbjörn
Ægir Vilhjálmsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdarlista.

 

   

9.

Fundargerðir stjórnar SSNE - S2208013

 

Fundargerðir stjórnar SSNE nr. 80 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.