Sveitarstjórn

167. fundur 10. mars 2026 kl. 14:00 - 15:15 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Anna Karen Úlfarsdóttir oddviti
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Brautarhóll (L152883) - fyrirspurn um skipulagsmál - S2602001

 

Erindi frá kaupendum jarðarinnar Brautarhóls (L152883) um áform um að breyta hlöðu á jörðinni í bifvélaverkstæði í atvinnuskyni. Málið var áður tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 24.02.2026 og var skipulags- og byggingafulltrúa þá falið að kalla eftir frekari gögnum. Nú liggja fyrir drög að teikningum og nánari upplýsingar um áformin.

 

Sveitarstjórn telur að atvinnurekstur af þessu tagi rúmist innan landnotkunarflokksins landbúnaðarlands samkvæmt gildandi aðalskipulagi.

 

   

2.

Merkjalýsing fyrir nýja íbúðar-/frístundalóð í landi Geldingsár (L152892) - S2603005

 

Erindi vegna framlagðrar merkjalýsingar lögð fram til staðfestingar.

 

Sveitarstjórn staðfestir merkjalýsingu sem gerð hefur verið vegna nýrrar íbúðar-/frístundalóðar úr landi Geldingsár L152892.

 

   

Bjarni Þór Guðmundsson vék af fundi undir næsta lið.

3.

Tjarnartún 2 - S2203001

 

Erindi frá AB byggir ehf. kt. 460326-2300, sækir um að fá úthlutaðri parhúsalóðinni Tjarnartúni F2500645.

 

Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni Tjarnartúni 2 til AB byggir ehf. kt. 460326-2300.

 

   

4.

Ráðgjafasamningur vegna velferðarþjónustu og skólaþjónustu - S2512004

 

Erindi frá Akureyrarbæ, tekinn er til annarrar umræðu samningur Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu.

 

Sveitarstjórn lýkur síðari umræðu um samning við Akureyrarbæ um Velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu.
Samningurinn er samþykktur samhljóða og sveitarstjóra falið að skrifa undir hann fyrir hönd sveitarfélagsins.
Ljóst er að samningurinn leiðir til umtalsverðs kostnaðarauka í málaflokkunum en umfang þjónustunnar er einnig töluvert meira en í fyrri samningi og aðilar sammála um að með nýjum samningi hefur að fullu verið tekið tillit til þeirra breytinga á þjónustu sem á milli þeirra hefur orðið.
Vegna kostnaðaraukans samþykkir sveitarstjórn samhljóða viðauka 01 við fjárhagsáætlun ársins 2026 upp á 6,3 m.kr.- og verður því mætt með lækkun á handbæru fé.

 

   

5.

Safnasafnið, samstarfssamningur - S2103009

 

Erindi frá stjórn Safnasafnsins. Stjórnin óskar formlega eftir framlengingu á samstarfssamningi Safnasafnsins og Svalbarðsstrandarhrepps. Núverandi samningur rennur út árið 2026.

 

Sveitarstjórn samþykkir að framlengja samninginn um eitt ár út árið 2027.

 

   

6.

Tillögur að breytingum á samþykktum Norðurorku hf. - S2603002

 

Erindi frá stjórn Norðurorku. Undanfarið hefur stjórn Norðurorku hf. unnið að endurskoðun samþykkta félagsins en þær voru síðast uppfærðar árið 2008. Í vinnunni hefur sérstaklega verið horft til lagabreytinga sem orðið hafa, leiðbeininga Viðskiptaráðs um góða stjórnarhætti fyrirtækja, sem og eigandastefnu Akureyrarbæjar.

Stjórn hefur fjallað um efni samþykktanna á þremur stjórnarfundum og nú liggja fyrir drög að breyttum samþykktum. Þau eru hér með send eigendum Norðurorku hf. til umfjöllunar og óskað eftir athugasemdum við drögin ef við á.

 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps fagnar því að fá drögin til umsagnar.
Sveitarstjórn telur að í 2. grein mætti skýra betur hlutverk Norðurorku sem innviðafyrirtækis sem starfar í þágu íbúa sveitarfélaganna.

Sveitarstjórn er sátt við faglega nálgun varðandi stjórn og hlutverk stjórnar, en telur 21. grein mögulega ganga gegn því sjálfstæði stjórnar og armslengd frá pólitískri stjórnun sem annars er verið að leitast eftir með breytingum samþykktanna.

Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við drögin sjálf, en leggur hins vegar áherslu á að minni hluthafar verði áfram með áheyrnarfulltrúa í stjórn svo sem verið hefur. Jafnframt að áheyrnarfulltrúi fái laun fyrir sína fundarsetu sem ekki hefur verið til þessa.

Loks telur sveitarstjórn eðlilegt og fer fram á að minni hluthafar fái beina aðkomu að ferli við val óháðra stjórnarmanna og varamanna þeirra.


 

   

7.

Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. - S2603001

 

Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2026 kl. 14:00 á Grand Hótel í Reykjavík.

Vakin er athygli á því að allir sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að sækja aðalfundinn svo og fulltrúar fjölmiðla skv. hlutafélagalögum (nr. 2/1995). Sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

8.

Ársþing SSNE - S2405006

 

Erindi frá SSNE, boð á ársþing SSNE verður haldið á Dalvík 26. mars nk.

 

Lagt fram til kynningar. Þingfulltrúar Svalbarðsstrandarhrepps á fundinum verða Anna Karen Úlfarsdóttir oddviti og Bjarni Þór Guðmundsson.

 

   

9.

Áskorun til sveitarfélaga - S2603003

 

Erindi frá Siglingasambandi Íslands sem skorar á sveitafélög landsins að leggja aukna og
markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi
almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

10.

Stjórnsýsluskoðun Svalbarðsstrandarhrepps - S1903010

 

Erindi frá sveitarstjóra. Stjórnsýsluúttekt 2025 er lokið. Niðurstöður kynntar fyrir sveitarstjórn.

 

Lagt fram til kynningar

Sveitarstjórn lýsir ánægju sinni með niðurstöður stjórnsýsluskoðunar KPMG. Engar athugasemdir eða ábendingar voru gerðar vegna ársins 2025.

 

   

11.

Umsókn um styrk til UMSE vegna Landsmóts 50+ - S2603004

 

Erindi frá UMSE vegna Landsmóts 50+ sem haldið verður í Eyjafjarðarsveit dagana 26.- 28. júní. Þar sem Svalbarðsstrandarhreppur er hluti af svæði UMSE, leitar mótsnefndin til sveitarstjórnar um styrk.

 

Sveitarstjórn samþykkir að styrkja UMSE vegna Landsmóts 50 um 200.000 kr. Upphæðin rúmast innan fjárhagsáætlunar 2026.

 

   

12.

Fundargerðir stjórnar Norðurorku - S2202007

 

Fundargerð stjórnar Norðurorku nr. 320 lögð fram til kynningar.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

13.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 107 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Á 107. afgreiðslufundi var bókað eftirfarandi tengt Svalbarðsstrandarhreppi:

1. Kotabyggð 6 - Umsókn um byggingarleyfi - S2602010
Erindi dagsett 16.02.2026 þar sem Donald Kári Kelley sækir um byggingaráform
byggingarleyfi/heimild vegna breyttrar notkunar á frístundahúsi í einbýlishús. Erindinu
fylgja uppdrættir eftir Valbjörn Ægir Vilhjálmsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
2. Bakkatún 46 - Umsókn um byggingarleyfi - S2602005
Erindi dagsett 10.02.2026 þar sem Jón Gunnar Benjamínsson sækir um byggingaáform og
byggingarleyfi/heimild fyrir raðhúsi á lóðinni Bakkatún 46, Svalbarðsstrandarhreppi.
Erindinu fylgja uppdrættir eftir Smára Björnsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.
3. Vaðlaborgir 16 - Umsókn um byggingarheimild - S2512010
Erindi dagsett 29.12.2025 þar sem Steinar Sigurðsson sækir um byggingaráform og
byggingarleyfi/heimild fyrir viðbyggingu við orlofshús á lóðinni Vaðlaborgir 16,
Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valþór Guðnýjar Brynjarsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

   

14.

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021 - S2102002

 

Fundargerð stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 993 lögð fram til kynningar.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:15.