Sveitarstjórn

168. fundur 24. mars 2026 kl. 14:00 - 16:00 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Anna Karen Úlfarsdóttir oddviti
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Bakkatún 23 - S2603013

 

Anja Elisabeth Müller kt: 281169-2389 og Helgi Viðar Tryggvason kt: 101069-5089 sækja um að fá úthlutað lóðinni Bakkatún 23 L239136.

 

Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni Bakkatún 23 til Önju Elisabeth Müller kt: 281169-2389 og Helga Viðars Tryggvasyni kt:101069-5089.

 

   

2.

Bakkatún 16 - S2503013

 

Birgir Ingason 111082-4729 og Heiðrún Beck kt:081189-4729 sækja um að fá úthlutað lóðinni Bakkatún 16 L230760.

 

Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni Bakkatúni 16 til Birgis Ingasonar kt. 111082-4729 og Heiðrúnar Beck kt. 081189-4729.

 

   

3.

Sorpmál í Svalbarðsstrandarhreppi - S1407215

 

Lagðar fram tillögur að staðsetningu á grenndarstöð í Svalbarðsstrandarhreppi.

 

Sveitarstjórn fór yfir tillögur um nýja staðsetningu grenndarstöðvar á Svalbarðseyri, annars vegar í Borgartúni við nýtt áhaldahús og hins vegar efst í Bakkatúni. Áframhaldandi umræður á næsta fundi.

 

   

4.

Endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024 - S2512009

 

Erindi frá Hörgársveit þar sem sveitarfélagið óskar umsagnar Svalbarðsstrandarhrepps vegna endurskoðunar aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024, nr. 0825/2023

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við nýtt aðalskipulag Hörgársveitar.

 

   

5.

Skólanefnd - 35 - 2603009F

 

Skólanefnd vísaði eftirfarandi máli til samþykktar. Starfsmannamál - Almennt - S2206003

Erindi frá skólastjóra Valsárskóla. Farið yfir mönnun í grunnskóla á komandi skólaári. Beiðni um aukið starfshlutfall skólaárið 2026-2027. Skólanefnd hefur skilning á aukinni þörf á mönnun í Valsárskóla. Málinu vísað til sveitarstjórnar.

 

Sveitarstjórn samþykkir erindið.

 

   

6.

Þjónustusamningur um málefni fatlaðra - S2508009

 

Skýrsla vinnuhóps velferðarráðs Akureyrarbæjar lögð fram til kynningar.

 

Skýrsla lögð fram til kynningar.

 

   

7.

Farsældarráð fundargerðir - S2602004

 

Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra nr. 3 og 4 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

8.

Hafnarsamlag fundargerðir - S2202008

 

Fundargerðir stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands eystra nr. 304 og 305 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

9.

Fundargerðir HNE - S2208016

 

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 246 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

10.

Fundargerðir stjórnar SSNE árið 2022 - S2201007

 

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 81 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

11.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 108 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

12.

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - S2201013

 

Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 994 og 995 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

Bjarni Þór Guðmundsson vék af fundi fyrir næsta lið.

13.

Tjarnartún 2 - S2203001

 

Erindi frá AB byggir ehf þar sem lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Tjarnatún 2. Breytingin felur í sér stækkun lóðar og byggingarreits til norðurs og austurs.

 

Sveitarstjórn samþykkir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi og vísar erindinu í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt er að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því skriflega yfir að þeir geri ekki athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu. Málshefjanda er jafnframt falið að leggja fram merkjalýsingu, sbr. reglugerð nr. 160/2024 um merki fasteigna. Sveitarstjórn leggur áherslu á að breytingar á lækjarfarvegi og frágangur svæðisins verði unnin með vönduðum hætti þannig að umgengni og ásýnd svæðisins verði góð, sbr. kafla 3.7 í greinargerð deiliskipulagsins og málshefjandi beri allan kostnað sem fellur til vegna þeirra breytinga.

 

   

14.

Trúnaðarmál - S2603016

 

Bókun færð í trúnaðarbók.

 

   

15.

Trúnaðarmál - S2603015

 

Bókun færð í trúnaðarbók.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00.