Sveitarstjórn

169. fundur 21. apríl 2026 kl. 14:00 - 16:00 Ráðhúsinu Svalbarðseyri
Nefndarmenn
  • Anna Karen Úlfarsdóttir oddviti
  • Sigurður Halldórsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
  • Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Ársreikningur 2025 - S2604003

 

Ársreikningur Svalbarðsstrandarhrepps 2025 - fyrri umræða. Jón Ari frá KPMG mætir á fundinn og fer yfir ársreikninginn.

 

Ársreikningur Svalbarðsstrandarhrepps fyrir árið 2025 lagður fram til fyrri umræðu. Á fundinn mætti Jón Ari frá KPMG og fór yfir ársreikninginn. Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningnum til síðari umræðu.

 

   

2.

Vaðlaborgir 17 - Breyting á deiliskipulagi - S2604002

 

Erindi frá Landslagi ehf. f.h. lóðarhafa Vaðlaborga 17 þar sem óskað er eftir heimild til breytingar á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að heimila allt að 30 m² gestahús norðan við núverandi hús á lóðinni og skilgreina byggingarreit fyrir það, a.m.k. 3 m frá lóðarmörkum. Gildandi deiliskipulag Vaðlaborga A fylgir fundargögnum.

 

Sveitarstjórn heimilar að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

3.

Hallland 7 - S2311003

 

Erindi vegna lóðarinnar Halllands 7 er tekið fyrir að nýju. Málið var síðast á dagskrá sveitarstjórnar 21. maí 2024, þegar landeiganda var heimilað að vinna deiliskipulag fyrir eitt íbúðarhús á lóðinni skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga. Nú liggur fyrir afstöðumynd af fyrirkomulagi byggingarreits á svæðinu, dags. 9. apríl 2025.

 

Sveitarstjórn samþykkir að umsækjanda verði veitt heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

4.

Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi gistingar II vegna Sólheima 19 - 2112001

 

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Sæluheimum ehf vegna Sólheima 19.

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við umsókn Sæluheima ehf. um gistileyfi en vekur athygli á að fasteignaskattur á eignina verði færður úr flokki A í flokk C vegna úthlutunar leyfis.

 

   

5.

Umsagnarbeiðni - Geldingsá lóð nr. 23 - Rekstrarleyfi gistingar í flokki II - S2604001

 

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Caze ehf. vegna Geldingsár lóðar nr. 23.

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við umsókn Caze ehf. um gistileyfi en vekur athygli á að fasteignaskattur eignarinnar verði færður úr flokki A í flokk C við útgáfu leyfis.

 

   

6.

Aðalskipulag Grýtubakkahrepps 2026 - Umsagnarbeiðni - Lýsing (Nýtt aðalskipulag) - S2604006

 

Erindi frá Grýtubakkahreppi. Umsagnarbeiðni vegna lýsingar á nýju aðalskipulagi Grýtubakkahrepps 2026

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við lýsinguna.

 

   

7.

Göngustígar - Svalbarðseyri - S2510003

 

Farið yfir teikningar af fyrirhuguðum göngustíg sem tengir skólasvæði og gróðurreit við Safnasafnið.

 

Sveitarstjórn fór yfir teikningar sem komnar eru af göngustíg frá Reitnum við Safnasafnið niður að skólasvæði. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.

 

   

Bjarni Þór Guðmundsson vék af fundi undir næsta lið

8.

Borgartún - S2410009

 

Nýting á húsnæði sveitarfélagsins í Borgartúni.

 

Ungmennafélagið Æskan kom á fund sveitarstjórnar þann 24. mars sl. og kynnti hugmyndir sínar um líkamsræktaraðstöðu í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn telur að slíkt verkefni stuðli að bættri lýðheilsu íbúa á öllum aldri. Sveitarstjórn samþykkir að gera samning um afnot af hluta húsnæðis sveitarfélagsins, Borgartúns, við Æskuna til reynslu í eitt ár. Sveitarstjóra falið að vinna drög að samningi fyrir sveitarstjórn.

 

   

9.

Samþykkt fyrir ungmennaráð Svalbarðsstrandarhrepps - S2604010

 

Erindi frá sveitarstjóra - Uppfærð samþykkt fyrir ungmennaráð Svalbarðsstrandarhrepps lögð fram til staðfestingar.

 

Sveitarstjórn samþykkir erindið.

 

   

10.

Frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga - S2604007

 

Greinargerð um frumvarp til sveitarstjórnarlaga unnin af GB stjórnsýsluráðgjöf.

 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps telur mikilvægt að endurskoðun sveitarstjórnarlaga fari fram í víðu samráði við sveitarfélög og með skýra virðingu fyrir sjálfstjórn þeirra, hlutverki og ólíkum aðstæðum. Sá tími sem gefinn hefur verið til verkefnisins er allt of skammur og getur það vart leitt til góðrar niðurstöðu fyrir heildina.
Sveitarfélagið hefur fengið utanaðkomandi ráðgjafa, Guðjón Bragason, til að taka saman helstu atriði fyrir sig ásamt mörgum öðrum sveitarfélögum og tekur sveitarstjórn undir þau sjónarmið sem þar koma fram. Sveitarstjórn telur að nokkur ákvæði þess séu of íþyngjandi, óskýr eða til þess fallin að auka reglubyrði án þess að ávinningur sé nægilega skýr.
Sveitarstjórn leggur sérstaka áherslu á athugasemdir við 69. gr. frumvarpsins um lögbundna fjármálastefnu. Að mati sveitarstjórnar er veruleg hætta á að sú skylda feli í sér aukið skrifræði og verði íþyngjandi fyrir minni og meðalstór sveitarfélög þar sem stjórnsýsla er einfaldari og mannafli takmarkaðri. Mikilvægt er að kröfur af þessu tagi taki mið af stærð, umfangi og rekstrarforsendum sveitarfélaga.
Sveitarstjórn telur einnig ástæðu til að horfa sérstaklega til annarra ákvæða frumvarpsins sem kunna að auka flækjustig í stjórnsýslu og samstarfi sveitarfélaga. Þar má nefna ákvæði um samvinnu sveitarfélaga, kostnaðarskiptingu og samninga við leiðandi sveitarfélag, þar sem mikilvægt er að lagaumgjörðin verði skýr, einföld og raunhæf í framkvæmd. Samstarf sveitarfélaga er víða forsenda skilvirkrar þjónustu og því þarf löggjöfin að styðja við það fremur en að gera það þyngra í vöfum.
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps telur mikilvægt að áfram verði unnið að frumvarpinu í nánu samtali við sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga, með það að markmiði að ná breiðri sátt um breytingar sem eru skýrar, málefnalegar og til þess fallnar að styrkja sveitarstjórnarstigið í heild.

 

   

11.

Stefna um opinbera þjónustu - S2604008

 

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga - Stefna um opinbera þjónustu.

 

Lagt fram til kynningar

 

   

12.

Byggðaáætlun - tækifæri til að hafa áhrif á aðgerðaáætlun 2027-2031 - S2604011

 

Erindi frá SSNE - Byggðastofnun hefur sett fram fyrstu drög að hvítbók um byggðamál sem er á vinnslustigi. Markmiðið með að setja þau fram á þessu stigi er að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum áður en þau verða mótuð frekar og útfærð endanlega.

 

Lagt fram til kynningar

 

   

13.

Boð á aðalfund Símey, haldinn 29. apríl 2026. - S2604004

 

Boð á ársfundur Símey, haldinn 29. apríl 2026.

 

Anna Karen Úlfarsdóttir sækir fundinn fyrir hönd Svalbarðsstrandarhrepps og fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

 

   

14.

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - S2201013

 

Fundargerð stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 996 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

15.

Fundargerðir stjórnar SSNE - S2208013

 

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 82 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

16.

Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2026 Fundargerðir - S2105001

 

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar, dags. 8.04.2026 lögð fram til kynningar.

 

Sveitarstjórn tekur undir áskorun svæðisskipulagsnefndar til stjórnvalda og Vegagerðar,
Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar skorar á stjórnvöld og Vegagerðina að flýta framkvæmd við hringtorg við Eyjafjarðarbraut eystri og við skipulag og gerð hjóla- og göngustígs sem tengir hjóla- og göngustíg í Vaðlareit við Akureyri. Þetta er mikilvæg framkvæmd fyrir umferðaröryggi vegna stórlega aukinnar umferðar gangandi og hjólandi um svæðið.

 

   

17.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 109 og 110 lagðar fram til kynningar.
Á 109. afgreiðslufundi var eftirfarandi bókað tengt Svalbarðsstrandarhreppi.

1. Vaðlaklif 6 - Umsókn um byggingarleyfi - S2603012
Erindi dagsett 18.03.2026 þar sem Vonarvegur ehf sækir um byggingaráform og
byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Vaðlaklif 6, Svalbarðsstrandarhreppi.
Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valbjörn Ægir Vilhjálmsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.

Á 110. afgreiðslufundi var eftirfarandi bókað tengt Svalbarðsstrandarhreppi.

2.
Svalbarðseyrarvegur 11 - Umsókn um byggingarheimild - S2602015
Erindi dagsett 26.02.2026 þar sem Míla ehf sækir um byggingarleyfi til niðurrifs á tækjahúsi á lóðinni Svalbarðseyrarveg 11, Svalbarðsstrandarhreppi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

18.

Tónlistarskóli Eyjafjarðar - fundargerðir - S2204002

 

Fundargerð stjórnar tónlistarskóla Eyjafjarðar nr. 153 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

 

   

19.

Kjörstjórn - 9 - 2603008F

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

20.

Kjörstjórn - 10 - 2604006F

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

21.

Landakaup - Helgafell land, Háreitur(úr landi tungu) og Ásgarð - S2604012

 

Lagt fram kauptilboð milli sveitarfélagsins og Hauks Laxdal Baldvinssonar um Helgafell, land, Háreitur (úr landi Tungu) og Ásgarð undirritað af báðum aðilum í apríl.

 

Sveitarstjórn staðfestir kauptilboðið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og ljúka frágangi þess.

 

   

22.

Laugartún 6b - S2108002

 

Lagður fram kaupsamningur milli sveitarfélagsins og Ásu Lind Aradóttur og Vignis Otra Elvarssonar um Laugartún 6b undirritað af öllum aðilum í apríl.

 

Sveitarstjórn staðfestir kaupsamninginn og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og ljúka frágangi þess.

 

   

23.

Sveitarstjórnarkosningar 2026 - S2603006

 

Tekið fyrir með afbrigðum með samþykki fundarmanna. Tillaga sveitarstjóra um stuðning við framboð lögð fram.

 

Sveitarstjórn samþykkir tillögu sveitarstjóra um að styðja við þau þrjú framboð sem boðið hafa fram fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026. Hverju framboði er veittur styrkur að upphæð 100.000 kr. Framboðin skulu sækja um styrkinn á skrifstofu sveitarfélagsins.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00.