Sveitarstjórn

171. fundur 26. maí 2026 kl. 14:00 - 15:15 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Anna Karen Úlfarsdóttir oddviti
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Vaðlaborgir B - íbúðarbyggð - beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag - S2505013

 

Erindi frá Landslagi f.h. landeigenda Vaðlaborga B. Sveitarstjórn tók erindið fyrir þann 23.09.2025 þar sem samþykkt var að unnið yrði að tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð á svæðinu. Fyrir liggur uppfærð deiliskipulagstillaga þar sem tvær lóðir næst Veigastaðavegi hafa verið felldar út frá fyrri drögum. Byggingarreitir efstu tveggja lóða eru um 90 m frá veginum og er óskað eftir undanþágu frá 100 m fjarlægðarkröfu.

 

Sveitarstjórn samþykkir að fyrirliggjandi tillaga að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B verði vísað í kynningarferli skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu vegna fjarlægðar byggingarreita efstu tveggja lóða, sem eru um 90 m fjarlægð frá Veigastaðavegi. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að annast áframhaldandi málsmeðferð.

 

   

2.

Hallland 7 - S2311003

 

Erindi frá Landslagi f.h. landeigenda Halllands 7. Sveitarstjórn tók málið síðast fyrir þann 21.04.2026 þar sem samþykkt var að umsækjanda yrði veitt heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrir liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vaðlabrekku þar sem skipulagssvæðið er stækkað til norðurs þannig að lóðin Hallland 7 falli innan deiliskipulagsins. Í breytingunni er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir eitt íbúðarhús á lóðinni.

 

Sveitarstjórn samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi Vaðlabrekku til samræmis við fyrirliggjandi gögn. Um er að ræða óverulega breytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna.

 

   

3.

Geldingsá - deiliskipulag íbúðarlóða - S2605003

 

Erindi þar sem lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir um 2 ha spildu úr landi Geldingsár. Tillagan felur í sér skipulag sex íbúðarlóða fyrir einbýlishús, með aðkomu frá Geldingsárvegi, byggingarreitum, gönguleiðum og sameiginlegu hreinsivirki fráveitu. Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2030 og rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði.

 

Sveitarstjórn samþykkir að fyrirliggjandi tillaga að deiliskipulagi íbúðarlóða í landi Geldingsár verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

4.

Birnubarð - Umsókn um byggingarheimild - S2604013

 

Erindi dagsett 13.04.2026 þar sem Árholt ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir sumarhúsi á lóðinni Birnubarði, Svalbarðsstrandarhreppi. Meðfylgjandi eru uppdrættir eftir Vigfús Halldórsson.

 

Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

5.

Heiðarsól - Beiðni um deiliskipulagsgerð - S2511012

 

Erindi vegna Heiðarsólar þar sem óskað er eftir heimild til breytingar á deiliskipulagi frístundabyggðar. Málinu var frestað á fundi sveitarstjórnar þann 24.04.2026 og skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og er málið tekið fyrir að nýju.

 

Sveitarstjórn hafnar erindinu. Í aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps er lögð skýr áhersla á að móta meginlínur fráveitumála í heild og að leita samræmdra lausna fyrir samfelld svæði frekar en stök hús.
Einnig þarf að horfa til framtíðarmöguleika á samræmdri þróun fráveitukerfa í suðurhluta hreppsins; dreifðar, ólíkar lausnir á hverri lóð vinna gegn þeirri heildarsýn.

Þegar horft er til þessarar stefnu og gildandi deiliskipulags er sú lausn sem lýst er með einstaklingsbundnum hreinsistöðvum á hverri lóð, ekki í samræmi við stefnu sveitarfélagsins.



 

   

6.

Einhóll L152919 og Mógil land L152925 - S2605006

 

Erindi þar sem lögð er fram merkjalýsing, dags. 12.05.2026, vegna Mógils lands L152925 og Einhóls L152919. Merkjalýsingin felur í sér afmörkun Mógils lands og afmörkun og stækkun lóðarinnar Einhóls. Meðfylgjandi er hnitsettur uppdráttur þar sem lóðamörk eru sýnd.

 

Sveitarstjórn staðfestir fyrirliggjandi merkjalýsingu vegna Mógils lands L152925 og Einhóls L152919

 

   

7.

Ásgarður lóð - S2605004

 

Erindi frá Klettabjörg ehf kt:490908-0990, ósk um viðræður við sveitarfélagið um að fá aukið land kringum lóðina Ásgarð L 194082.

 

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

 

   

8.

Svalbarðseyrarvegur 6 - S2605005

 

Svalbarðseyrarvegur 6, áður samþykkt kauptilboð í tölvupósti lagt fyrir sveitarstjórn.

 

Sveitarstjórn samþykkir kauptilboð Björgunarsveitarinnar Týs í hlut húseignar sveitarfélagsins Svalbarðseyrarvegi 6.

 

   

9.

Erindi Bjarmahlíð - S2404007

 

Erindi frá Lögreglustjóra Norðulands eystra, vegna Bjarmahlíðar.

 

Sveitarstjórn samþykkir erindið. Framlag Svalbarðsstrandarhrepps er kr. 357.722.- og rúmast upphæðin innan fjárhagsáætlunar.

 

 

 

 

10.

Viðaukar - 2026 - S2604017

 

Erindi frá skrifstofustjóra. Fyrir fundinum liggur uppfærð tekjuáætlun vegna ársins 2026 og viðauki 03 lagður fram til samþykktar.

 

Sveitarstjórn staðfestir viðauka 03 við fjárhagsáætlun 2026.

Yfirlit yfir áætluð framlög til sveitarfélaga árið 2026 hefur verið uppfært hjá jöfnunarsjóði.

Áætlað framlag til reksturs grunnskóla fer úr 81.505.077 kr. í 100.448.009 kr. Viðaukabreytingin færist á lykil 0010-0141.

 

   

11.

Velferðar- og menningarnefnd - 1 - 2601006F

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

12.

Fundargerðir stjórnar SSNE - S2208013

 

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 83 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

13.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerðir stjórnar embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 112 og 113 lagðar fram til kynningar.

Eftirfarandi mál voru tekin fyrir tengd Svalbarðsstrandarhreppi.

Bakkatún 12-14 - Umsókn um byggingarleyfi - S2601001
Erindi dagsett 09.12.2025 þar sem Theódór Þórólfsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílskúr við íbúð 14B í raðhúsi á lóðinni Bakkatúni 12-14 (L226786), Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Yngva Ragnar Kristjánsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.

Bakkatún 46 - Umsókn um byggingarleyfi - S2602005
Erindi dagsett 10.02.2026 þar sem Jón Gunnar Benjamínsson sækir um byggingaáform og byggingarleyfi/heimild fyrir raðhúsi á lóðinni Bakkatún 46, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Smára Björnsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

Álfaborg - Umsókn um byggingarleyfi - S2603011
Erindi dagsett 17.03.26 þar sem Svalbarðsstrandarhreppur sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir viðbyggingu við Álfaborg, svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

14.

Hafnarsamlag fundargerðir - S2202008

 

Fundargerð aðalfundar Hafnarsamlags Norðurlands eystra.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

 

 

 

15.

Fundargerðir Hafnasamlags Norðurlands 2021 - S2102019

 

Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands eystra nr. 307 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

16.

Fundargerðir stjórnar Norðurorku - S2202007

 

Fundargerðir stjórnar Norðurorku nr. 321, 322 og 323 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.





Á síðasti fundi sveitarstjórnar 2022-26 er Önnu Karen Úlfarsdóttur þakkað fyrir setu sína í sveitarstjórn síðustu 12 ár og Hönnu Sigurjónsdóttur er þakkað fyrir setu sína í sveitarstjórn síðustu 4 ár. Önnu Karen og Hönnu er þakkað fyrir fagleg vinnubrögð, staðfestu og fyrir að hafa hag sveitarfélagsins ávallt að leiðarljósi í ákvörðunartöku.

Oddviti vill færa sveitarstjóra, starfsfólki sveitarfélagsins og sveitarstjórn kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf, fagleg og vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins undanfarin ár.

Jafnframt er nefndarfólki þakkað fyrir mikilvægt framlag á liðnu kjörtímabili. Oddviti óskar nýrri sveitarstjórn farsældar í komandi verkefnum.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:15.