Dagskrá:
|
1. |
Sveitarstjórnarkosningar 2026 - S2603006 |
|
|
Skýrsla kjörstjórnar skv. 119. gr. kosningalaga nr. 112/2021, vegna sveitarstjórnarkosninga dags. 16. maí 2026. |
||
|
Skýrsla lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
2. |
Kosning oddvita og varaoddvita - S2203012 |
|
|
Kosning oddvita og varaoddvita. |
||
|
Ólafur Rúnar Ólafsson var kjörin oddviti til eins árs. |
||
|
|
||
|
3. |
Skipan í nefndir á kjörtímabilinu 2026-2030 - S2606002 |
|
|
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir. |
||
|
Sveitarstjórn hefur skipað eftirfarandi: |
||
|
|
||
|
4. |
Ráðning sveitarstjóra 2026-2030 - S2606001 |
|
|
Ráðning sveitarstjóra. |
||
|
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða framlagðan ráðningarsamning við Þórunni Sif Harðardóttir. |
||
|
|
||
|
5. |
Siðareglur kjörinna fulltrúa Svalbarðsstrandarhrepps - S2606006 |
|
|
Lagðar fram til staðfestingar siðareglur kjörinna fulltrúa Svalbarðsstrandarhrepps í samræmi við 29. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. |
||
|
Lagt fram til staðfestingar. |
||
|
|
||
|
6. |
Samþykktir sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps - S2004007 |
|
|
Endurskoðaðar samþykktir Svalbarðsstrandarhrepps fyrri umræða. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir að vísa endurskoðun á samþykktum sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps í seinni umræðu. |
||
|
|
||
|
7. |
Erindi frá SSNE, vegna skipunar stjórnarmanns, varamanns og þingfulltrúa og varaþingfulltrúa á þing SSNE. - S2606003 |
|
|
Erindi frá SSNE, v. skipunar stjórnarmanns, varamanns og þingfulltrúa og varaþingfulltrúa á þing SSNE. |
||
|
Sveitarstjórn tilnefnir Ólaf Rúnar Ólafsson sem aðalmann í stjórn SSNE og sveitarstjóra sem varamann. Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir og Bjarni Þór Guðmundsson verða þingfulltrúar á þingi SSNE og Gréta María Halldórsdóttir og Árný Þóra Ágústsdóttir varaþingfulltrúar. |
||
|
|
||
|
8. |
Erindi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, kosning þingfulltrúa á landsþing. - S2606004 |
|
|
Erindi frá Sambandi ísl. Sveitarfélaga, kosning þingfulltrúa á landsþing. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir að Ólafur Rúnar Ólafsson verður fulltrúi sveitarfélagins á landsþinginu og Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir varafulltrúi. |
||
|
|
||
|
9. |
Nýbygging Álfaborg - S2606010 |
|
|
Útboð á framkvæmdum - Leikskólinn Álfaborg, |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Valsmíði ehf. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningum við verktaka. |
||
|
|
||
|
Sigríður Ingibjörg vék af fundi undir næsta lið. |
||
|
10. |
Afmælishátíð Kvenfélags Svalbarðsstrandar - S2606011 |
|
|
Erindi frá Kvenfélagi Svalbarðsstrandar, styrkbeiðni vegna afmælishátíðar Kvenfélags Svalbarðsstrandar sem fagnar 125. ára afmæli í ár. Fyrirhugað er að halda afmælisfagnað 28. júní nk. |
||
|
Sveitarstjórn fagnar fyrirhugaðari afmælishátíð kvenfélags Svalbarðsstrandar og styrkir hátíðina um 100.000 kr. Fjárhæðin rúmast innan fjárhagsáætlunar Svalbarðsstrandarhrepps 2026. |
||
|
Sigríður Ingibjörg kom aftur inn á fund eftir umfjöllun um síðasta lið. |
||
|
|
||
|
11. |
Fasteignamat 2027 - S2606009 |
|
|
Erindi frá skrifstofustjóra. Fasteignamat 2027 var kynnt af HMS 2. júní sl. Skrifstofustjóri fer yfir áhrif breytinga nýs mats á fasteignir Svalbarðsstrandarhrepps. |
||
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
12. |
Upprekstur á afrétt - S2105003 |
|
|
Upprekstur á afrétt. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir að í sumar verður heimilt að sleppa sauðfé í Vaðlaheiði frá og með 17. júní og stórgripum frá og með 8. júlí. Búfjáreigendur eru beðnir að gæta að ástandi gróðurs í heiðinni áður en þeir sleppa fé sínu og fresta upprekstri ef ástæða er til. |
||
|
|
||
|
13. |
Bergið samningur - S2606005 |
|
|
Erindi frá SSNE, samstarfssamningur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Bergsins. |
||
|
Sveitarstjórn staðfestir samninginn fyrir sitt leyti. |
||
|
|
||
|
14. |
Birnubarð - Umsókn um byggingarheimild - S2604013 |
|
|
Erindi dagsett 13.04.2026 þar sem Árholt ehf. sækir um byggingarheimild fyrir sumarhúsi á lóðinni Birnubarði, Svalbarðsstrandarhreppi. Upphaflegt erindi gerði ráð fyrir allt að 80 fm sumarhúsi með risi og var áður vísað í grenndarkynningu og samþykkt. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem uppfærðir aðaluppdrættir eru í samræmi við upphaflega umsókn og þau byggingaráform sem þegar hafa hlotið grenndarkynningu. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi afgreiði erindið á grundvelli fyrirliggjandi gagna. |
||
|
|
||
|
15. |
Bakkatún 16 - Umsókn um byggingarleyfi - S2606012 |
|
|
Erindi þar sem óskað er eftir breytingu á byggingarreit lóðarinnar Bakkatún 16, L230760. Fyrir liggja uppdrættir og afstöðumynd vegna fyrirhugaðs einbýlishúss á lóðinni, þar sem sýnd er breyting á byggingarreit. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem samþykki nágranna liggur fyrir er fallið frá grenndarkynningu, sbr. 44. gr. laganna. Skipulagsfulltrúa er falið að sjá um gildistöku breytingarinnar. |
||
|
|
||
|
16. |
Farsældarráð fundargerðir - S2602004 |
|
|
Fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra nr. 6 lögð fram til kynningar. |
||
|
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
17. |
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - S2201013 |
|
|
Fundargerð stjórnar samband íslenskrasveitarfélaga nr. 998 og 999 lagðar fram til kynningar. |
||
|
Fundargerðir lagðar fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
18. |
Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006 |
|
|
Fundargerð stjórnar embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 114 lögð fram til kynningar. |
||
|
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:40.