|
1.
|
Krafa DJE ehf. vegna sölu og deiliskipulags lóða við Heiðasól úr landi Sólbergs. - S2606026
|
| |
Borist hefur bótakrafa frá DJE ehf. vegna skipulagsskilmála á Heiðarsól. Lögmaður sveitarfélagsins fer yfir stöðu mála.
|
| |
Sveitarstjórn hafnar kröfunni og felur sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins að vinna málið áfram.
|
|
|
|
|
|
2.
|
Geldingsá - deiliskipulag íbúðarlóða - S2605003
|
| |
Erindi þar sem lögð er fram að lokinni kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi íbúðarlóða í landi Geldingsár. Erindið var áður tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar þann 26. maí 2026 þar sem samþykkt var að kynna tillöguna. Kynning fór fram á tímabilinu 29. maí til 19. júní 2026. Engar umsagnir bárust á kynningartíma.
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir að fyrirliggjandi tillaga að deiliskipulagi íbúðarlóða í landi Geldingsár verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
|
|
|
|
|
|
3.
|
Hallland 7 - S2311003
|
| |
Erindi þar sem lögð er fram að lokinni grenndarkynningu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vaðlabrekku vegna Halllands 7. Erindið var áður tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar þann 26. maí 2026 þar sem samþykkt var að grenndarkynna tillöguna. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 29. maí til 26. júní 2026. Tvær umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram til umfjöllunar.
|
| |
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda og skipulagshönnuð um breytta útfærslu aðkomu að lóðinni með hliðsjón af umsögn Vegagerðarinnar. Fyrir liggur samþykki eiganda aðliggjandi lóðar um að aðkoma að Halllandi 7 verði úr norðri. Sveitarstjórn mælir til þess að sú útfærsla verði skoðuð nánar og að uppfært breytingarblað verði lagt fram þar sem gerð er grein fyrir nýju fyrirkomulagi aðkomu og vegtengingar. Málið verður tekið fyrir að nýju þegar uppfærð gögn liggja fyrir.
|
|
|
|
|
|
4.
|
Vaðlaborgir 17 - Breyting á deiliskipulagi - S2604002
|
| |
Erindi þar sem lögð er fram að lokinni grenndarkynningu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vaðlaborga A vegna Vaðlaborga 17. Erindið var áður tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar þann 21. apríl 2026. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 12. maí til 12. júní 2026. Tvær umsagnir bárust á grenndarkynningartíma og eru þær lagðar fram til umfjöllunar.
|
| |
Sveitarstjórn þakkar innkomnar umsagnir. Sveitarstjórn telur að breytingin samræmist ekki gildandi greinargerð deiliskipulags Vaðlaborga A né rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði. Á þeim grundvelli hafnar Sveitarstjórn tillögunni.
|
|
|
|
|
|
5.
|
Fjárhagsáætlun 2027-2030 - S2606020
|
| |
Erindi frá skrifstofustjóra. - Farið yfir drög af dagskrá fjárhagsáætlunarvinnu vegna ársins 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.
|
| |
Farið yfir skipulag fjárhagsáætlunarvinnu. Dagskrána má sjá á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps undir samþykktir og reglugerðir.
|
|
|
|
|
|
6.
|
Viðaukar - 2026 - S2604017
|
| |
Erindi frá skrifstofastjóra. - Viðauki 04 er lagður fram til samþykktar.
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir viðauka 04.
Gert er ráð fyrir aukinni lánstöku á árinu 2026. Áætluð lántaka var 40.000.000 kr. á árinu en er hækkuð um 100.000.000 kr. Heildarlántaka er því 140.000.000 kr. og er tilkomin vegna nýbyggingar við leikskólann Álfaborg
Handbært fé í árslok er áætlað 80.389.000 kr.
|
|
|
|
|
|
7.
|
Samþykktir sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps - S2004007
|
| |
Endurskoðaðar samþykktir Svalbarðsstrandarhrepps seinni umræða.
|
| |
Endurskoðun á samþykktum Svalbarðsstrandarhrepps teknar til seinni umræðu.
Eftirfarandi samþykktir eru teknar til seinni umræðu og samþykktar af sveitarstjórn.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp stjórna í Svalbarðsstrandarhreppi
Samþykkt skipulagsnefndar Samþykkt Atvinnu- og umhverfisnefndar Samþykkt Velferðar- og menningarnefndar Samþykkt skólanefndar
Skrifstofustjóra falið að lagfæra endanlega útgáfu í samræmi við umræður á fundinum, óska eftir staðfestingu ráðherra og annast birtingu samþykktanna.
|
|
|
|
|
|
8.
|
Skipan í nefndir á kjörtímabilinu 2026-2030 - S2606002
|
| |
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir fyrir kjörtímabilið.
|
| |
Sveitarstjórn hefur skipað í skiðulagsnefnd eftirfarandi aðila:
Skipulagsnefnd Nefndarmenn: Bjarni Þór Guðmundsson Harpa Barkardóttir Guðmundur Emilsson
Varamenn: Andri Már Þórhallsson Svala Einarsdóttir Gréta María Halldórsdóttir
|
|
|
|
|
|
9.
|
Borgartún - samningur um afnot af húsnæði. - S2606024
|
| |
Samningur um afnot af Borgartúni lagður fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir samning við ungmennafélagið Æskuna um afnot af hluta húsnæðis sveitarfélagsins í Borgartúni.
Samningstími er 1. júlí 2026 - 31. október 2027.
Sveitarstjóra falið að rita undir samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.
|
|
|
|
|
|
Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir vék af fundi undir næsta lið.
|
|
10.
|
Starfsmannamál - almennt - S2606013
|
| |
Beiðni um aukið stöðugildi, áður tekið fyrir á 36. fundi skólanefndar þann, 11. júní sl. og vísað til sveitarstjórnar.
|
| |
Sveitarstjórn samþykkir erindi skólanefndar um aukið stöðugildi til loka árs 2026.
|
|
|
|
|
|
11.
|
Samningur um refaveiðar 2026-2028 - S2606022
|
| |
Samningur um refaveiðar 2026-2028 lagður fram til kynningar.
|
|
|
|
|
|
12.
|
Búfjárbeit og ágangur Búfjár - S2606023
|
| |
Erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu. - Atvinnuvegaráðuneytið vill með erindi þessu minna á bréf sem sent var sveitarfélögum um regluverk um búfjárbeit 14. febrúar 2024.
|
| |
Lagt fram til kynningar.
|
|
|
|
|
|
13.
|
Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda - S2606025
|
| |
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Vakin er athygli á því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt reglugerð sem að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda. Með nýrri reglugerð hefur ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið og sent reikninginn á sveitarfélög landsins.
|
| |
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
|
|
|
|
|
|
14.
|
Skipan öldungaráða og mikilvægi virks samráðs við eldra fólk. - S2606021
|
| |
Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins frá Landssambandi eldri borgara. - Landssambandið hvetur sveitarstjórnir til á leggja áherslu á öflugt starf Öldungaráðs frá upphafi kjörtímabils og eru reiðubúin til frekara samtals og samstarfs um þessi málefni.
|
| |
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjórn vísar málinu til velferðar- og menningarmálanefndar.
|
|
|
|
|
|
15.
|
Skólanefnd - 36 - 2606005F
|
| |
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
|
|
|
|
|
|
16.
|
Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006
|
| |
Fundargerðir nr.115 og 116 SBE lagðar fram til kynningar.
Eftirfarandi mál voru tekin fyrir tengd Svalbarðsstrandarhreppi.
Á fundi 115. 3. Bakkatún 12-14 - Umsókn um byggingarleyfi - S2601001 Erindi dagsett 09.12.2025 þar sem Theódór Þórólfsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílskúr við íbúð 14B í raðhúsi á lóðinni Bakkatúni 12-14 (L226786), Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Yngva Ragnar Kristjánsson. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
Á fundi 116.
1. Tjarnartún 2 - Umsókn um byggingarleyfi - S2606017 Erindi dagsett 18.06.2026 þar sem AB Byggir ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir parhús á lóðinni Tjarnartún 2, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Hjörleif Sigurþórsson. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
2. Bakkatún 10 - Umsókn um byggingarheimild - S2605002 Erindi dagsett 07.05.2026 þar sem Pétur Örn Helgason sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Bakkatún 10,Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Andra Martin Sigurðsson Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
3. Bakkatún 16 - Umsókn um byggingarleyfi - S2606012 Erindi dagsett 05.06.2026 þar sem Birgir Ingason sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishúsi á lóðinni Bakkatún 16, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Yngva Ragnar Kristjánsson. Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.
|
| |
Lagt fram til kynningar
|
|
|
|
|
|
17.
|
Fundargerðir HNE - S2208016
|
| |
Fundargerðir 248 og 249 lagðar fram til kynningar.
|
| |
Lagt fram til kynningar
|
|
|
|
|
|
18.
|
Fundargerðir stjórnar Norðurorku - S2202007
|
| |
Fundargerð nr. 324 stjórnar Norðurorku hf. lögð fram til kynningar.
|
| |
Lagt fram til kynningar.
|
|
|
|
|
|
19.
|
Erindi til sveitarstjórnar - S2302004
|
| |
Erindi frá Stefáni Tryggvasyni dags. 29.06.26. þar sem kvartað er undan ágangi búfjár af fjalli í landi Vaðlaheiðar en fé kemur þaðan úr afréttum/sumarbeitarhögum og niður í ógirt ræktarlönd landeiganda. Erindið er tekið fyrir með afbrigðum, með samþykki allra fulltrúa.
|
| |
Oddviti sveitarstjórnar hefur áður átt fund með landeiganda fyrir nokkrum dögum síðan. Í málinu liggur einnig fyrir að þriðji aðili leigir spildu úr landi landeiganda undir grænmetisrækt. Leigutakinn kom á skrifstofu sveitarfélagsins fyrr í morgun og lýsti áhyggjum af því að fé kæmi af fjalli og legðist á beit í grænmetisrækt hans, og ylli þar óbætanlegu tjóni, ef ekkert yrði að gert.
Stefán hefur krafið sveitarfélagið um smölun og hreinsun á landinu í dag.
Sveitarfélagið sendi Stefáni af því tilefni tölvuskeyti kl. 10:57 í dag þar sem óskað var eftir leyfi til að reisa fjallsgirðingu þegar í stað á kostnað hreppsins og viðhald girðingar yrði á hendi og kostnað sveitarfélagsins. Er það gert í því augnamiði að skapa forsendur til að unnt væri að smala búpeningi og reka að ný til afréttar, í samræmi við það sem ráðgert er í 31. gr. afréttarlaga nr. 6/1986, en fyrir liggur að ekki eru fjárheldar fjallgirðingar í landi Leifsstaða og Þórisstaða. Búfé á því frjálsa leið niður í heimalönd. Var þess getið í beiðni að öðrum kosti væri þýðingarlaust að gera ráðstafanir til að reka fé aftur á fjall.
Í tölvuskeyti Stefáns kl. 12:09, þar sem hann bregst við beiðni hreppsins, hafnar hann beiðni sveitarfélagsins.
Kom fram að landeigandi hefur tekið burtu girðingu í landi Leifshúsa og Þórisstaða sem skilur heimalönd frá afréttarlöndum, sjá afmörkun í 5. gr. laga nr. 6/1986 á afréttum (þar með talið í einkaeigu). Landeigandi neitar beiðnum um girðingar í sínu landi. Þá staðfestir hann að það sé rétt mat sveitarfélagsins að það sé þýðingarlaust að gera ráðstafanir til að reka fé aftur á fjall þar sem ekki eru girðingar.
Með beiðni sinni hugðist sveitarfélagið, á eigin kostnað reisa girðingu milli afréttinnar og heimalanda landeiganda, sbr. löggjafarsjónarmið 32. gr. afréttarlaganna og reka fé svo á fjall, enda taldar viðhlítandi ráðstafanir til að varna ágangi búpenings af afréttarlandinu í Vaðlaheiði. Fjárheld girðing í samræmi við lög og reglu um girðingar er áhrifarík og varanleg leið til að bregðast við ágangi hjá landeigandanum. Leitt verður af forsendum í dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 48/2023, frá 15.5.2024, að afréttur getur verið hvort tveggja innan og utan eignarlanda. Hugtakið er samkvæmt þeirri nýskipan um flokkun lands sem komið var á með lögum nr. 58/1998 (um þjóðlendur) ekki lengur notað sem lýsing á ákveðnu eignarformi lands heldur skilgreint sem landsvæði utan byggðar sem að staðaldri hafi verið notað til sumarbeitar fyrir búfé. Það er notað um ákveðin afnotaréttindi, beitarréttindi og hugsanlega fleiri réttindi. Áratugahefð er fyrir sumarbeit búfjár í Vaðlaheiði með tilheyrandi fjallskilaframkvæmd að hausti, sbr. til hliðsjónar 12. gr. afréttarlaga um gildissvið afréttarlaganna. Ekki liggja gögn fyrir um að afréttarlandið í einkaeign landeiganda hafi verið tekið úr afréttarnotum með samþykki sveitarstjórnar, sbr. lagaskilyrði 5. gr. afréttarlaga nr. 6/1986.
Landeigandi hafnar þannig í erindi sínu frá því kl. 12:09 í dag að heimila sveitarfélaginu að gera ráðstafanir til að verja heimalönd hans gegn ágangi búfjár. Sveitarfélagið getur því ekki gripið til þeirra ráðstafana sem eru tækar að mati sveitarfélagsins til að verja hagsmuni leigutakans. Fyrir liggur mat sveitarfélagsins, sem landeigandi hefur staðfest skriflega, að þýðingarlaust er að gera ráðstafanir að reka fé aftur á fjall þar sem ekki er girt. Ekki verður tekin ákvörðun um að banna lausagöngu búfjár á afréttum og sumarbeitarhögum í sveitarfélaginu sem bændur nýta og hafa gert frá fornu.
Að mati sveitarfélagsins hefur það boðið fram úrræði sem eru tafarlaus, fullnægjandi, eðlileg, varanleg og í samræmi við lög og reglur til að ná settu markmiði og verða við kröfu landeiganda um varnir gegn ágangi búfjár, sbr. til hliðsjónar ákvæði 2. mgr. 7. gr. fjallskilasamþykktar fyrir sveitarfélög við Eyjafjörð nr. 173/2011 um að girðingar skuli fjárheldar. Að mati sveitarfélagsins uppfyllir framboðin lausn meðalhóf og skynsamlega nýtingu fjármuna og mannafla í sveitarfélaginu. Grundvallarmunur er á ákvæðum 33. gr. og 31. gr. afréttarlaga þar sem ábyrgðarmaður búfjár í heimalöndum hefur vörsluskyldu á fé sínu. Í því tilviki skal smala fé þó sá sem fyrir ágangi verður hafi lönd sín ógirt. Í hlutarins eðli liggur að sama gildir ekki þegar lausaganga búfjár er heimil, svo sem háttar til hér, sbr. til hliðsjónar 2. mgr. 7. gr. fjallskilasamþykktar nr. 173/2011.
Sveitarfélagið metur höfnun landeiganda ómálefnalega. Þar sem Vaðlaheiði hefur fornu verið í afréttarnotum og það eignarland landeiganda sem þannig háttar til um ekki verið gert að heimalandi í samræmi við ákvæði 5. gr. afréttarlaga, eru ekki lagaskilyrði til að banna lausagöngu búfjár eins og hún hefur verið frá fornu fari í Vaðlaheiði. Þar sem lausaganga búfjár er heimil í afréttarlöndum, telur sveitarfélagið að skylda til smölunar, umfram það sem þegar er fram boðin, sé ekki fyrir hendi, enda hafnar landeigandi beiðni sveitarfélags um að reisa girðingu. Sú höfnun er á ábyrgð og áhættu landeiganda sjálfs.
Með hliðsjón af öllu ofangreindu, er ekki unnt að verða við beiðni landeiganda um smölun ágangsfjár úr afréttarlöndum í Vaðlaheiði niður í heimalönd jarðanna Þórisstaða og Leifsstaða. Oddvita falið að kynna landeiganda niðurstöðu sveitarstjórnar.
|
|
|
|
|