Sveitarstjórn

174. fundur 18. ágúst 2026 kl. 14:00 - 14:50 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ólafur Rúnar Ólafsson oddviti
  • Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir varaoddviti
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Harpa Barkardóttir
  • Eiríkur Haukur Hauksson
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Skipulagsnefnd - 1 - 2608006F

 

1.1

S2608002 - Skipting verka innan nefndar.

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd - 1

 

Skipulagsnefnd útnefndi Bjarna Þór Guðmundsson sem formann skipulagsnefndar og Fannar Frey Magnússon skrifstofustjóra sem ritara nefndarinnar. Þarfnast ekki frekari afgreiðslu sveitarstjórnar.

 

1.2

S2505013 - Vaðlaborgir B - íbúðarbyggð - beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd - 1

 

Sveitarstjórn samþykkir að fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Vaðlaborga B verði vísað í auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að fenginni undanþágu frá fjarlægðarmörkum vegna byggingarreita tveggja austustu lóða. Skipulagshönnuði er falið að hafa framkomnar athugasemdir til hliðsjónar við áframhaldandi vinnslu tillögunnar.

Sveitarstjórn tekur undir með Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps sem telur sérstakar aðstæður á svæðinu styðja veitingu undanþágu frá fjarlægðarmörkum vegna byggingarreita í Vaðlaborgum B. Norðan Vaðlaborga B liggur íbúðar- og frístundasvæðið Kotabyggð, sem þegar er byggt að hluta. Þar er m.a. gata samsíða Veigastaðavegi með níu íbúðarlóðum, Kotabyggð 44-52, sem allar eru innan 100 m frá Veigastaðavegi. Átta þeirra hafa verið byggðar frá árinu 2018 og standa íbúðarhús austan götunnar í um 18-22 m fjarlægð frá Veigastaðavegi. Jafnframt er þar ein óbyggð íbúðarlóð þar sem gildandi deiliskipulag heimilar byggingu íbúðarhúss í um 20 m fjarlægð frá veginum. Deiliskipulag Kotabyggðar öðlaðist gildi árið 2014, eftir gildistöku skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Að mati nefndarinnar væri því ósamræmi við byggðamynstur á aðliggjandi svæði að heimila ekki byggingarreit í um 90 m fjarlægð frá Veigastaðavegi í Vaðlaborgum B. Nefndin bendir jafnframt á að íbúðarsvæðið í Vaðlaborgum B er um 3,3 ha að stærð og um 1,2 ha þess eða um 35%, er innan 100 m frá Veigastaðavegi. Verði ekki heimilað að nýta þann hluta svæðisins til uppbyggingar skerðist nýting lands sem þegar er skilgreint sem íbúðarsvæði í aðalskipulagi. Þá er kostnaður við uppbyggingu innviða, svo sem vegagerð og lagnir, umtalsverður miðað við þann fjölda íbúðarlóða sem tillagan gerir ráð fyrir. Ef byggingarreitur í um 90 m fjarlægð frá veginum verður ekki heimilaður þarf að fækka lóðum enn frekar, sem eykur hlutfallslegan kostnað við uppbyggingu hverrar lóðar. Nefndin bendir einnig á að tillagan er í samræmi við skilmála rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði, m.a. hvað varðar lágmarksstærð lóða, fjarlægð milli byggingarreita, fjarlægð frá mörkum næsta landnotkunarreits og tengsl lóða við náttúrulegt umhverfi.

 

1.3

S2606019 - Kotabyggð 37 - Beiðni um breytta skráningu á lóð

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd - 1

 

Skipulagsnefnd vísaði málinu til SBE þar sem samkvæmt gildandi deiliskipulagi er lóðin Kotabyggð 37 skilgreind sem íbúðarhúsalóð. Þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar.

 

1.4

S2606018 - Sólheimar 3 - Umsókn um byggingareit fyrir bílskúr

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd - 1

 

Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

1.5

S2608001 - Hallland L152894, Meyjarhóll L152912 og Hátún L229501 - deiliskipulag íbúðarbyggðar á ÍB31 og ÍB32

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd - 1

 

Sveitarstjórn samþykkir að fyrirliggjandi skipulagslýsing verði samþykkt og kynnt í samræmi við 2 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

2.

Skipan í fjölmenningarráð SSNE 2026-2030 - S2608003

 

Erindi frá SSNE, samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) óska eftir tilnefningu fulltrúa frá sveitarfélaginu í fjölmenningarráð SSNE fyrir komandi kjörtímabil.

 

Sveitarstjórn tilnefnir Sigríði Ingibjörgu Stefánsdóttir fulltrúa Svalbarðsstrandarhrepps.

 

   

3.

Haustþing SSNE 9.9.2026 - þingboð - S2608004

 

Erindi frá SSNE, boð á haustþing SSNE 9.9.2026, þingið verður haldið á Dalvík.

 

Erindi lagt fram. Ólafur Rúnar Ólafsson og Bjarni Þór Guðmundsson verða fulltrúar Svalbarðsstrandarhrepps á þinginu.

 

   

4.

Fundargerðir HNE - S2208016

 

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 250 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar. Varðandi lið 4 í fundargerðinni um reglugerðarbreytingar er sveitarstjóra falið að senda inn umsögn í samráðsgátt með vísan í umsögn SSNE um málið.

 

   

5.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 117, 118 og 119 lagðar fram til kynningar.
Eftirfarandi mál tekin fyrir tengd Svalbarðsstrandarhreppi á 117 fundi.

Vaðlaklif 2 L219459 - byggingarleyfi einbýlishús - 2412005
Erindi dagsett 15.07.2026 þar sem Kristján Elí Örnólfsson sækir um breytingu á áður samþykktum teikningum fyrir einbýlishús á lóðinni Vaðlaklif

Svalbarðsstrandarhrepp. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

Vaðlaklif 5 - Umsókn um byggingarleyfi - S2605001
Erindi dagsett 06.05.2026 þar sem Hólmfríður Vala Svavarsdóttir sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Vaðlaklif 5, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valbjörn Ægir Vilhjálmsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

Bakkatún 16 - Umsókn um byggingarleyfi - S2606012
Erindi dagsett 05.06.2026 þar sem Birgir Ingason sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishúsi á lóðinni Bakkatún 16, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Yngva Ragnar Kristjánsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

6.

Fundargerðir stjórnar SSNE - S2208013

 

Fundargerðir stjórnar SSNE nr 84 og 85 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:50.