Sveitarstjórn

175. fundur 08. september 2026 kl. 14:00 - 16:10 Í ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ólafur Rúnar Ólafsson. oddviti
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
  • Eiríkur Haukur Hauksson
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags-og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Fjárhagsáætlun 2027-2030 - S2609002

 

Fjárhagsáætlun - 2027
Tekjuáætlun og launaáætlun lögð fyrir sveitarstjórn til kynningar.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

2.

Ákvörðun um fundartíma sveitarstjórnar 2026-2030 - S2608013

 

Sveitarstjórn ákveður almenn viðmið um tíðni og tímasetningu sveitarstjórnarfunda.
Fyrir fundinum liggur sú tillaga að sveitarstjórn fundi almennt á þriggja vikna fresti, fundir verði á þriðjudögum klukkan 14:00.

 

Sveitarstjórn samþykkir fundardagatal 2026-2027.
Sumarfrí sveitarstjórnar á kjörtímabilinu hefjist almennt fyrir 17.júní og fyrsti fundur að loknu sumarfríi sé haldinn eigi síðar en 16.ágúst. Aukafundir verði haldnir ef brýn þörf er á.
Þá verði tekið mið af því að síðasti fundur fyrir jól sé almennt ekki haldinn síðar en í fyrstu heilu viku desember og fyrsti fundur á nýju ári skuli almennt ekki haldinn síðar en í annarri heilu viku janúar.

 

   

3.

Skipan í nefndir á kjörtímabilinu 2026-2030 - S2606002

 

Kosið í stjórn Tónlistarskóla Eyjafjarðar og Ungmennaráð.

 

Sveitarstjórn kaus eftirtalda í nefndir og ráð á vegum sveitarfélagsins:
Stjórn Tónlistarskóla Eyjafjarðar
Aðalmaður: Árný Þóra Ágústsdóttir, varamaður: Svala Einarsdóttir
Ungmennaráð

Andri Snær Hannesson
Friðrik Þór Ómarsson
Lilja Eyfjörð Jakobsdóttir
Ninja Rós Viktorsdóttir

 

   

4.

Kjör sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna. - S1806010

 

Umræður um kjör sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna. Könnun sem gerð var á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um kjör sveitarstjórnarmanna lögð fram.

 

Umræður um kjör sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna. Könnun sem gerð var á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um kjör sveitarstjórnarmanna lögð fram.
Sveitarstjórn samþykkti að laun sveitarstjórnarfulltrúa á mánuði verði óbreytt hlutfall af þingfararkaupi. 

 

5.

   
 

Fyrir fundinum liggur tillaga um að hefja viðtalstíma sveitarstjórnarfulltrúa, þá gefist íbúum kostur á að hitta kjörna fulltrúa, koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum eða ræða einstök mál.

 

Sveitarstjórn samþykkir að hefja viðtalstíma hjá sveitarstjórnarfulltrúum. Fyrsti viðtalstíminn verður 20. október kl 16:30 til 17:30 í ráðhúsinu Svalbarðseyri.

Í framhaldinu verða viðtalstímar einu sinni í mánuði og munu tveir sveitarstjórnarfulltrúar verða til viðtals hverju sinni.

Íbúar þurfa að bóka viðtal fyrir fram í gegnum tölvupóst á netfangið postur@svalbardsstrond.is. Gert er ráð fyrir 20-30 mínútna viðtölum einnig er óskað eftir stuttri lýsingu á erindi við bókun svo sveitarstjórnarfulltrúar geti undirbúið sig eftir því sem við á.

 

   

6.

Göngu- og hjólastígur áfangi III - S2501005

 

Farið yfir stöðuna á hönnun á göngu- og hjólastíg frá Vaðlaheiðargöngum út Grenivíkurveg.

 

Fannar Freyr verkefnastjóri fór yfir stöðuna og næstu skref, sveitarstjórn mun halda upplýsingafund með landeigendum.

 

   

7.

Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - S2608015

 

Erindi frá Innviðaráðuneyti lagt fram ásamt spurningu til sveitarfélaga.

 

Sveitarstjórn felur skrifstofu og sveitarstjóra að svara erindinu og senda inn.

 

   

8.

Kolka - rafrænt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga - S2609001

 

Erindi frá SSNE til sveitarfélaga þar sem óskað er eftir formlegu samþykki fyrir þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga.

 

Sveitarstjórn samþykkir formlega þátttöku Svalbarðsstrandarhrepps.

 

   

9.

Upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033 - S2609009

 

Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun vegna endurskoðunar vatnaáætlunar fyrir tímabilið 2028-2033. Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um fyrirhugaðar framkvæmdir og sjálfbær umsvif sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Skilafrestur upplýsinga er til og með 30. september 2026.

 

Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

 

   

10.

Náttúruhamfaratrygging Íslands - S2609005

 

Erindi frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands - Áminning um ákvæði 16. gr. laga nr. 55, 1992 - E2608054
Náttúruhamfaratrygging Íslands sendir sveitarstjórnun á Íslandi bréf þar sem hún beinir
sjónum sínum að vaxandi tjónum á nýlegum mannvirkjum á þekktum flóðasvæðum og
talsverðrar umræðu um enn frekari framkvæmdir á slíkum svæðum

 

Sveitarstjórn þakkar Náttúruhamfaratryggingum Íslands fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að við skipulagsgerð og leyfisveitingar sé tekið fullnægjandi tillit til þekktrar náttúruvár og fyrirliggjandi áhættumats.
Sveitarstjórn vísar málinu til skipulagsnefndar til kynningar.

 

   

11.

Vináttuheimsókn - S2609010

 

Erindi frá bæjarstjórn Akureyrarbæjar, þar sem kannaður er áhugi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á að taka á móti bæjarstjórn Akureyrarbæjar í vináttuheimsókn. Tilgangur heimsóknarinnar er að sveitarstjórnarfólk sveitarfélaganna hittist og kynnist, auk þess sem tækifærið verði nýtt til umræðu um sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna, meðal annars fyrirhugaða þróunaráætlun fyrir borgarsvæði Akureyrar.

 

Sveitarstjórn tekur vel í erindi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um vináttuheimsókn og fagnar því að efla tengsl sveitarstjórnarfólks með hagsmuni sveitarfélaganna að leiðarljósi.

 

   

12.

Velferðar- og menningarnefnd - 2 - 2608010F

 

12.1

S2608002 - Skipting verka innan nefndar.

 

Niðurstaða: Velferðar- og menningarnefnd - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu velferðar- og menningarnefndar.

 

12.2

S1204001 - Yfirlit yfir veitta félagsþjónustu í Svalbarðsstrandarhreppi

 

Niðurstaða: Velferðar- og menningarnefnd - 2

   
 

12.3

S1402008 - Félagsstarf eldri borgara

 

Niðurstaða: Velferðar- og menningarnefnd - 2

 

Sveitarstjórn samþykkir erindi nefndarinnar.

 

12.4

S2606021 - Skipan öldungaráða og mikilvægi virks samráðs við eldra fólk.

 

Niðurstaða: Velferðar- og menningarnefnd - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu velferðar- og menningarnefndar.

 

   

13.

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2 - 2608013F

 

13.1

S2608006 - Hallland áfangi 2 - breyting á deiliskipulagi vegna nýrrar lóðar

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar.

 

13.2

S2608007 - Bakkatún 1 - ósk um breytingu á deiliskipulagi

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar.

 

13.3

S2608009 - Tunga - beiðni um heimild til deiliskipulagningar frístundasvæðis F12

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar.

 

13.4

S2605003 - Geldingsá - deiliskipulag íbúðarlóða

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar.

 

13.5

S2506005 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2025-2037 - umsagnarbeiðni

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar.

 

13.6

S2608012 - Íbúðarbyggð á Svalbarðseyri - breyting á deiliskipulagi vegna farsímamasturs og útivistarstígs

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar.

 

13.7

S2608010 - Foss L152916 - beiðni um staðsetningu rotþróar

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 2

 

Sveitarstjórn staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar.

 

   

14.

Greið leið ehf - Aðalfundur - S2609007

 

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Greiðrar leiðar ehf., sem haldinn var 9. júní 2026. Á var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum tillaga stjórnar um að félagið yrði tekið til slita á grundvelli XIII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.
Auk þess var farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins fyrir árið 2025, auk þess sem stjórn og endurskoðandi félagsins voru kjörin.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

15.

Greið leið ehf. - hluthafafundur - S2609008

 

Stjórn Greiðrar leiðar ehf. samþykkti að leggja til við hluthafafund að félagið yrði tekið til slita. Á hluthafafundi félagsins 9. júní 2026 var ársreikningur 2025 lagður fram ásamt álitsgerð endurskoðanda, þar sem fram kom að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum. Hluthafafundur samþykkti jafnframt kosningu skilanefndar og að tilkynna hlutafélagaskrá um slit félagsins. Samkvæmt ársreikningi nam eigið fé félagsins 21,6 m.kr. í árslok 2025 og kom fram í álitsgerð endurskoðanda að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum.
Á fundinum var jafnframt samþykkt að kjósa Jónas Rafn Tómasson og Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur í skilanefnd félagsins. Skilanefnd var falið að tilkynna hlutafélagaskrá um slit félagsins og óska löggildingar til skilanefndarstarfa í samræmi við 3. mgr. 86. gr. laga um einkahlutafélög.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

16.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.
Eftirfarandi mál var tekið fyrir tengt Svalbarðsstrandarhreppi.

Vaðlabrekka 1 - íbúðarhús 2021 - 2112007
Erindi dagsett 19.08.2026 þar sem S2 fjárfestingar ehf sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir einbýlishús á lóðinni Vaðlabrekka 1, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppfærðir uppdrættir eftir Margréti Harðardóttur.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

17.

Farsældarráð fundargerðir - S2602004

 

Fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra nr. 7 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

18.

Hafnarsamlag fundargerðir - S2202008

 

Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands eystra nr. 308 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

19.

Fundargerðir stjórnar Norðurorku - S2202007

 

Fundargerð stjórnar Norðurorku hf. nr. 325 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

20.

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - S2201013

 

Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 100 og 1001 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.