Sveitarstjórn

176. fundur 29. september 2026 kl. 14:00 - 15:30 Í ráðhúsniu
Nefndarmenn
  • Ólafur Rúnar Ólafsson oddviti
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
  • Gréta María Halldórsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 3 - 2609006F

 

Sveitarstjórn staðfestir fund skipulagsnefndar.

 

1.1

S2609013 - Brekkusel L216012 - stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 3

 

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.

 

1.2

S2608001 - Hallland L152894, Meyjarhóll L152912 og Hátún L229501 - deiliskipulag íbúðarbyggðar á ÍB31 og ÍB32

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 3

 

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.

 

1.3

S2609002 - Fjárhagsáætlun 2027-2030

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 3

 

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.

 

   

2.

Fjárhagsáætlun 2027-2030 - S2609002

 

Erindi frá skrifstofustjóra. Fyrstu drög af fjárhagsáætlun 2027-2030 lögð fram til kynningar ásamt fjárhagsramma fyrir fjárfestingaáætlun 2027-2031

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

3.

Viðaukar - 2026 - S2604017

 

Erindi frá skrifstofastjóra. - Viðauki 05 er lagður fram til samþykktar.

 

Sveitarstjórn samþykkir viðauka 05 vegna breytingar á rekstraráætlun vegna ársins 2026. Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu aðalsjóðs þar sem hækkun tekna og kostnaðar er jafn hár.

 

   

4.

Erindi frá Norðurorku, ábyrgðarbeiðni vegna lántöku - S2609015

 

Erindi frá Norðurorku, ábyrgðarbeiðni vegna lántöku. Ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Norðurorku hf. í eigu sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga:

 

Rætt um samskipti og aðkomu allra hluthafa að stjórn Norðurorku hf. og samtöl við núverandi stjórnendur Akureyrarbæjar og verðandi stjórn Norðurorku hf þar um. Í ljósi þeirra og í því trausti að vilji sé til bættrar samvinnu er tekin ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Norðurorku hf. í eigu sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga:

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 300.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Norðurorku hf. til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Þórunni Sif Harðardóttur, sveitarstjóra , kt. 191265-5809, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Svalbarðsstrandarhrepps, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

 

   

5.

Þjóðarsátt um verðstöðuleika. - S2609016

 

Erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands, óskar eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé
reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár
sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir
gildandi kjarasamninga.

 

Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi sameiginlegs átaks um verðstöðugleika og samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði almennt ekki miðað við meiri gjaldskrárhækkanir en 2,5%.
Sveitarstjóra er falið að kynna Starfsgreinasambandi Íslands þessa afstöðu.

 

   

6.

Ósk um stuðning við Flugklasann Air 66N - S2609017

 

Erindi frá Markaðsstofur Norðurlands, óskar eftir stuðningi Svalbarðsstrandarhrepps að upphæð 500 kr. á hvern íbúa á ári til næstu þriggja ára (2027-2029).

 

Svalbarðsstrandarhreppur samþykkir að styrkja Flugklasann Air 66N að upphæð 500 kr. á hvern íbúa á ári til næstu þriggja ára (2027-2029).

 

   

7.

Styrkbeiðni - S2609014

 

Erindi frá Ísokkísambandi Íslands og Skautafélag Akureyrar, óskað eftir samstarfi við alþjóðlegan íþróttaviðburð á Akureyri í janúar 2027.

 

Sveitarstjórn hafnar erindinu.

 

   

8.

Nýbygging Álfaborg - S2606010

 

Farið yfir stöðu nýbyggingar á leikskólanum Álfaborg og hönnun lóðar.

 

Fannar Freyr fór yfir stöðuna á framkvæmdum og hönnun lóðar við Álfaborg. Sveitarstjórn er ánægð með stöðu framkvæmda.

 

   

9.

Göngustígar - Svalbarðseyri - S2510003

 

Verðtilboð á framkvæmdum við göngustíg á Svalbarðseyri.

 

Kostnaðaráætlun verksins er kr. 6.036.000
Þrjú tilboð bárust í verkið
Finnur ehf. 6.015.000.- (99,5%)
Stefán Þengils 5.902.302.- (97,8%)
Nesbræður 4.341.000.- (71,9%)

Sveitarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Nesbræður ehf. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningi við verktaka.

 

   

10.

Kvennaathvarf á Akureyri - S2006009

 

Erindi frá samtökum um kvennaathvörf - Umsókn um rekstrarstyrk til Kvennaathvarfs á Norðurlandi

 

Sveitarstjórn samþykkti erindið og mun hlutur Svalbarðsstrandarhrepps verða kr. 68.835,- á árinu 2027.

 

   

11.

Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030 - S2609018

 

Erindi frá SSNE.
Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030 og fundargerð 8. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 9. september 2026. Á fundinum var áætlunin samþykkt og ákveðið að senda hana sveitarstjórnum og framkvæmdastjórnum þjónustuveitenda ríkisins til umfjöllunar. Farsældarráð hefur jafnframt samþykkt að óska eftir því að sveitarstjórnir á Norðurlandi eystra taki áætlunina til formlegrar afgreiðslu

 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps lýsir yfir vonbrigðum með að ríkisstjórnin skuli í fjárlagafrumvarpi ekki gera ráð fyrir áframhaldandi fjárframlagi til málaflokksins og hvetur Alþingi til að sjá til þess að í fjárlögum verði gert ráð fyrir áframhaldandi framlagi til farsældarmála barna.

 

   

12.

afnotarétt af hluta lands sem Svalbarðsstrandarhreppur hefur á leigu frá Veigastöðum ehf - S2609019

 

Erindi frá Rögnvaldi Ö. Snorrasyni,beiðni um afnotarétt af hluta lands sem Svalbarðsstrandarhreppur hefur á leigu frá Veigastöðum ehf í Kotabyggð og afmarkast af lóðarmörkum Kotabyggðar 49 í norðri og miðlínu runna í sunnanverðu leigulands sveitarfélagsins, þar sem staðsett er gámasvæði fyrir almennt og lífrænt sorp, sem og gróðurúrgang.

 

Sveitarstjórn hafnar erindinu. Oddvita falið að klára málið samkvæmt umræðum á fundinum.

 

   

13.

Skipan í nefndir á kjörtímabilinu 2026-2030 - S2606002

 

Fyrir fundinum liggur að skipa fimmta fulltrúa og varamann í Ungmannaráð Svalbarðsstrandarhrepps.

 

Sveitarstjórn skipar Eyrúnu Dröfn Gísladóttir sem aðalmann í Ungmennaráð og Míu Möller Gautadóttir sem varamann.

 

   

14.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 120 og 121 lagðar fram til kynningar.
Eftirfarandi var tekið fyrir tengt Svalbarðsstrandarhreppi.

Vaðlabrekka 1 - íbúðarhús 2021 - 2112007
Erindi dagsett 19.08.2026 þar sem S2 fjárfestingar ehf sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir einbýlishús á lóðinni Vaðlabrekka 1, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppfærðir uppdrættir eftir Margréti Harðardóttur.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

15.

Farsældarráð fundargerðir - S2602004

 

Fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra nr. 8 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

16.

Hafnarsamlag fundargerðir - S2202008

 

Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands eystra nr. 309 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

17.

Fundargerðir HNE - S2208016

 

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 251 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

18.

Fundargerðir stjórnar SSNE - S2208013

 

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 86 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

19.

Fundargerðir Molta ehf - S2411004

 

Fundargerð stjórnar Moltu nr. 118 lögð fram ti kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30.