Sveitarstjórn

178. fundur 10. nóvember 2026 kl. 14:00 - 15:15 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ólafur Rúnar Ólafsson oddviti
  • Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir varaoddviti
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
  • Gréta María Halldórsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Fjárhagsáætlun 2027-2030 - S2609002

 

Tillaga að fjárhagsáætlun 2027-2030 lögð fram til fyrri umræðu.

 

Sveitarstjórn vísar tillögu að fjárhagsáætlun til frekari vinnslu og síðari umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn ákveður jafnframt að útsvarsprósenta næsta árs 2027 verði óbreytt, 14,97 %.

 

   

2.

Bakkatún 1 - Úthlutun lóðar - S2608008

 

M11 byggir ehf. hefur skilað inn uppfærðum teikningum vegna Bakkatúns 1 til að leggja fyrir sveitarstjórn tengt lóðarúthlutun í Bakkatúni 1.

 

Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni Bakkatún 1 - lóðanúmer L226776 til Gunnars Jónssonar kt. 140761-2659 og M11 byggir ehf kt. 440613-0550.

 

   

3.

Umsókn um rekstrarleyfi gistingar í flokki II - G íbúðir - S2611001

 

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gististaðar í flokki II-íbúðir, Móafell, 606 Akureyri

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við umsókn Hagsmíði ehf kt:581295-2359 um leyfi gististaðar en vekur athygli á að fasteignaskattur á eigninni verði færður úr flokki A í flokk C vegna leyfisins.

 

   

4.

Veigahall 3 L217593 - umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum Norðurlandi eystra um rekstarleyfi gististaðar í flokki II-C - S2611004

 

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gististaðar í flokki II- C Minna gistiheimili, við Veigahall 3, 606 Akureyri.

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við umsókn Knarrarnes ehf,kt:570489-2679u um leyfi gististaðar en vekur athygli á að fasteignaskattur á eigninni verði færður úr flokki A í flokk C vegna leyfisins.

 

   

5.

Meðalheimur farsímamastur - S2610015

 

Erindi frá Mílu hf sækir um að fá úthlutað lóð fyrir farsímamastur á Svalbrðseyri.

 

Sveitarstjórn samþykkir að útdeila lóðinni Meðalheimur farsímamastur, landnúmer L242290 til Mílu ehf. kt. 460207-1690.

 

   

6.

Styrkbeiðni um styrk jól 2026 - S2610012

 

Erindi frá matargjafir Akureyrar og nágrennis, ósk um stuðning 2026.

 

Sveitarstjórn synjar erindinu.

 

   

7.

Skipan í nefndir á kjörtímabilinu 2026-2030 - S2606002

 

Fyrir fundinum liggur að skipa varamann í Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar.

 

Sveitarstjórn skipar sveitarstjóra sem varamann í Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar

 

   

8.

Nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar - S2611002

 

Umræður um nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar.

 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps lýsir yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú. Loftbrú er mikilvægur þáttur í að jafna búsetuskilyrði og aðgengi landsmanna að þjónustu, enda er stór hluti sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu og menningarstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að Loftbrú haldi raunverulegu verðgildi sínu og íbúar landsbyggðarinnar sitji við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins og staða þeirra íbúa skerðist ekki vegna breytinga á fyrirkomulagi verkefnisins. Sveitarstjórn gagnrýnir jafnframt að svo veigamiklar breytingar á mikilvægum byggðaaðgerðum séu boðaðar án víðtæks samráðs við sveitarfélög og íbúa þeirra svæða sem kerfið þjónar.

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps skorar á stjórnvöld að endurskoða boðaðar breytingar, tryggja raunverulegt samráð við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar og standa vörð um Loftbrú sem mikilvægt tæki til byggðarjöfnunar.

 

   

9.

Hluthafafundur Norðurorku 30.11.2026 - S2611006

 

Boðað er til hluthafafundar í Norðurorku þann 30.11.2026.

 

Sveitarstjórn samþykkti að Ólafur Rúnar Ólafsson oddviti fari með umboð Svalbarðsstrandarhrepps á fundinum.

 

   

10.

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 5 - 2610015F

 

10.1

S2608009 - Tunga - beiðni um heimild til deiliskipulagningar frístundasvæðis F12

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 5

 

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar

 

10.2

S2311003 - Hallland 7

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 5

 

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.

 

10.3

S2608001 - Hallland L152894, Meyjarhóll L152912 og Hátún L229501 - deiliskipulag íbúðarbyggðar á ÍB31 og ÍB32

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 5

 

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar

 

10.4

S2609013 - Brekkusel L216012

 

Niðurstaða: Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps - 5

 

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.

 

   

11.

Skólanefnd - 37 - 2610011F

 

Fundargerð lög fram til kynningar.

 

11.1

S2010009 - Starfsáætlun Valsárskóla / Álfaborgar

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   
 

11.2

S2010009 - Starfsáætlun Valsárskóla / Álfaborgar

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   
 

11.3

S2109015 - Réttur á skólavistun - staðfesting

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   
 

11.4

S2606013 - Starfsmannamál - almennt

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   
 

11.5

S2606014 - Starfsmannamál - almennt

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   
 

11.6

S2405009 - Skólamáltíðir

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   
 

11.7

S2503004 - Skipurit skólanna

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   
 

11.8

S2606015 - Trúnaðarmál

 

Niðurstaða: Skólanefnd - 37

   

 

   

12.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006

 

Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

13.

Fundargerðir stjórnar SSNE - S2208013

 

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 87 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

14.

Fundargerðir stjórnar Norðurorku - S2202007

 

Fundargerðir stjórnar Norðurorku nr. 328 og 329 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

   

15.

Fundargerðir stjórnar Norðurorku - S2202007

 

Fundargerð auka aðalfundar Norðurorku lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram ti kynningar.

 

   

16.

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - S1809014

 

Fundargerð Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar nr.20 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

17.

Fundargerðir HNE - S2208016

 

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr.252 ásamt fjárhagsáætlun 2027 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.