Fundargerð 12. fundar Umhverfisnefndar
Þriðjudaginn 2. júní 2009 klukkan 19:30 í Ráðhúsinu
Mættir eru Starri og Helga ásamt sveitarstjóra, Leifur mætti á seinni hluta fundar.
Kynning á fundi um úrgangsmál
Sveitarstjóri og formaður umhverfisnefndar sátu fundinn þar sem farið var yfir áherslur Sambands íslenskra sveitarfélaga í úrgangsmálum og framtíðaráætlanir viðraðar.
Gámasvæðið
Umræða um framtíðargámasvæði á Svalbarðseyri, notkun á núverandi gámasvæði og nauðsyn þess að flokkað verði vel í rétta gáma. Gjaldskrá Flokkunar og yfirlit um sorp úr hreppnum frá Flokkun skoðuð.
Næstu skref í flokkunarmálum í sveitarfélaginu
Vangaveltur um raunverulega þörf fyrir gámasvæði á Svalbarðseyri með bættum möguleikum á endurvinnslu og flokkun fyrir íbúa. Væri gámasvæði við Réttarhvamm opnað fyrir íbúa sveitarfélagsins samtímis að boðið væri upp á endurvinnslutunnu inn á hvert heimili í sveitarfélaginu, gæti þörfin orðið lítil sem engin? Sérstaklega ef staðið væri fyrir hreinsunarátaki reglulega (t.d. að vori og að hausti) þar sem boðið væri upp á að stærri hlutir yrðu fjarlægðir frá heimilum í sveitarfélaginu.
Hvaða lausnir eru raunhæfar í flokkun heima fyrir; umræða um endurvinnslu/flokkunartunnur eins og t.d. Grænu tunnuna hjá íslenska gámafélaginu.
Bréf frá Birgi hjá íslenska gámafélaginu varðandi Grænu tunnuna kynnt.
Nefndin æskir þess að sveitarstjóri, ásamt þeim nefndarmönnum sem möguleika hafa á, haldi fund með Einari Kristjánssyni og fulltrúa Gámaþjónustu Norðurlands innan tveggja vikna til að vinna að því að endurvinnslu/flokkunartunnur geti verið teknar í notkun sem fyrst í sveitarfélaginu.
Ofbeit og ástand lands í Tungu
Samþykkt að senda beiðni til Gróðurverndarnefndar Eyjafjarðar með beiðni um úttekt á viðkomandi landi.
5. Skurðir í Vaðlaheiði
Kynnt
Önnur mál
Hreinsunarvika 8.-14. júní: Með svipuðum hætti og á síðasta ári. Einnig verði leitað til Heilbrigðiseftirlitsins í tengslum við hreinsunarátakið líkt og undanfarin ár. Allir hvattir til að taka til í kringum sig, bæði íbúar og fyrirtæki.
Tilkynning v. Vaðlaheiðar.Auglýsing verði birt í Dagskránni þar sem minnt er á bann við utanvegaakstri og aðgátar sé þörf vegna búfjár í Vaðlaheiðinni.
Njólaeyðing. Könnun vegna njólaeyðingar hefur verið send landeigendum.
Jarðgerðartunnur. Stefnt verði að því að senda könnun til þeirra sem hafa fengið jarðgerðartunnur þar sem skoðað verði hvernig þær nýtast. Einnig verði gefinn kostur á að skila tunnunni. Nefndin telur æskilegt og að þeir aðilar sem vilja, geti bætt við sig jarðgerðartunnu.
Ekki fleira fært til bókar.
Fundi slitið kl 22:35
Fundargerð ritaði Helga Kvam