Þriðjudagur 18. maí 2010 kl. 19:30 í Ráðhúsinu.
Mætt voru Helga Kvam, Anna Fr. Blöndal og Jakob Björnsson. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Hreinsunarvika
Fyrir lágu drög að bréfi til íbúa sveitarfélagsins varðandi hreinsunarviku 7. - 13. júní n.k. Farið yfir drögin og þau samþykkt. Ákveðið að efna til sameiginlegs hreinsunarkvölds í upphafi hreinsunarviku.
Flokkun úrgangs næstu skref.
Það sem liggur fyrir era ð næsta skref er að flokka frá lífrænan úrgang til jarðgerðar. Hvernig það verður gert liggur ekki fyrir en ljóst er að niðurstaða í því máli þarf helst að liggja fyrir fyrir áramót. Helga Kvam tekur að sér að búa til frekari flokkunarleiðbeiningar varðandi endurvinnslutunnuna og verða þær upplýsingar settar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Árni skýrði frá því að nú er nánast lokið að afhenda flokkunartunnurnar.
Svæði fyrir úrgang frá frístundabyggðinni syðst í sveitarfélaginu.
Árni gerði grein fyrir stöðu mála varðandi gámasvæði á suðurströnd. Verið er að vinna tillögu að svæðinu hjá Verkís.
Upprekstur búfjár og viðhald fjallsgirðingarinnar.
Fyrir lágu drög að bréfi til land- og búfjáreigenda varðandi upprekstur búfjár á afrétt.
Önnur mál.
Ruslatunnur við sparkvöllinn og við gönguleið út á Hamar.
Minnt á að samþykkt var í nóv. 2009 að setja ruslatunnur við sparkvöllinn og á gönguleiðinni út á Hamar. Árna falið að klára málið.
Skilti vegna utanvega aksturs í Vaðlaheiði.
Í júlí 2007 var ákveðið að setja þrjú skilti, sjá bókun frá þeim fundi. Jakob falið að hafa samband við KKA varðandi samvinnu um málið. Árna falið að fylgja málinu eftir.
Ekki fleira fært til bókar.
Fundi slitið kl. 21.00
Fundargerð ritaði Anna Fr. Blönda