Fundargerð
4. fundur umhverfisnefndar Svalbarðsstrandarhrepps 2010-2014, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, þriðjudaginn 25. október 2011 kl. 17:00.
Fundinn sátu: Helga Kvam, Þorgils Guðmundsson og Ragna Erlingsdóttir.Jón Hrói Finnsson,
Fundargerð ritaði: Ragna Erlingsdóttir, ritari umhverfisnefndar.
Dagskrá:
1. 1110020 - Framtíð Moltu ehf.
Fulltrúar Moltu ehf., Eiður Guðmunsson framkvæmdastjóri og Guðmundur Sigvaldason stjórnarformaður mættu á fundinn og fóru yfir stefnu fyrirtækisins.
Sveitarstjórnarfulltrúarnir Guðmundur Bjarnason, Anna Fr. Blöndal og Eiríkur H. Hauksson sátu einnig fundinn undir þessum lið. Guðmundur og Eiður fóru yfir stöðu fyrirtækisins og árangur í moltugerðinni. Fram kom að óskað er eftir að Svalbarðsstrandarhreppur auki hlutafé sitt um 570 þ.kr. og að formlegt erindi þess efnis muni berast sveitarfélaginu á næstunni. Umhverfisnefnd vísar málinu til umfjöllunar sveitarstjórnar.
2. 1106002 - Útboð sorphirðu 2011
Farið var yfir forsendur útboðs á sorphirðu í Svalbarðsstrandarhreppi, markmið, tilhögun sorphirðu, kröfur til bjóðenda o.fl.
Umhverfisnefnd mælir með að þjónustan miðist við að þrjú ílát verði við hvert heimili, eitt fyrir endurvinnanlegan úrgang, eitt fyrir lífrænan úrgang og eitt fyrir úrgang til urðunar. Nefndin mælist til að hætt verði að nota ruslapoka, þar sem gætt hefur nokkurrar óánægju með það fyrirkomulag. Nefndin mælir einnig með að gámum á gámasvæðum verði fjölgað þannig að hægt sé að flokka með sem líkustum hætti þar og á heimilum. Sérstök ílát verði sett upp fyrir gler, plast og lífrænan úrgang. Á gámasvæðinu á Svalbarðseyri væri æskilegt að settur yrði upp nytjagámur til reynslu.
Rætt var um hvaða kröfur ætti að gera til sorpbíla og tækja og lagt til að gerðar verði kröfur um bakkflautur og skyndihjálparbúnað. Umhverfisnefnd leggur til að almennt sorp verði ekki losað sjaldnar en hálfsmánaðarlega og sett verði ákvæði um endurskoðun útfærslu eftir eitt ár.
Umhverfisnefnd mælir með að Vegbúanum verði gefinn 3ja mánaða uppsagnafrestur frá dagsetningu útboðs.
3. 1105009 - Eyðing njóla og kerfils í Svalbarðsstrandarhreppi
Umræður um aðgerðir gegnnjóla og kerfli á komandi ári. Sveitarstjóri fór yfir aðgerðir gegn njóla og kerfli á árinu 2011. Fram kom að njólaeitri var ekki dreift til íbúa eins og til stóð þar sem eitrið var pantað of seint til að hafa áhrif á dreifingu njólans, skv. upplýsingum frá söluaðila. Eitrið var þó keypt inn og látið þeim íbúum í té sem báru sig eftir því.
Eitrað var fyrir kerfli í sveitarfélaginu í sumar með sama hætti og undanfarin ár. Á upplýsingafundi um eyðingu kerfils sem sveitarstjóri sótti kom fram að mest áhrif eru af aðgerðunum ef eitrað er snemma á vorin og svo aftur um mitt sumar. Jafnframt kom fram á fundinum að æskilegt er að stemma stigu við bjarnarkló áður en hún nær mikilli útbreiðslu. Rík áhersla verður lögð á eyðingu þessara plantna næsta sumar og búast má við auknum fjárútlátum vegna þess.
4. 1110021 - Fegrun umhverfis í Svalbarðsstrandarhreppi
Rætt um aðgerðir til að fegra umhverfið í Svalbarðsstrandarhreppi.
Umhverfisnefnd mælist til þess að gert verði átak gegn ruslasöfnun í sveitarfélaginu.
Umhverfisnefnd leggur til að láta járnagám ganga um sveitina næsta sumar, líkt og gert hefur verið í Eyjafjarðarsveit. Einnig verða allir íbúar hreppsins hvattir til að taka vel til í kringum híbýli sín. Sérstök áhersla verður lögð á hreinsun og tiltekt á Eyrinni og ætlar sveitafélagið sýna gott fordæmi og taka til í kringum eignir þess. Umhverfisnefnd leggur til að skoðað verði alvarlega að nýta krafta félagasamtaka s.s. Seeds til hreinsunarstarfa í sveitarfélaginu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:00.