Fundargerð
7. fundur umhverfisnefndar Svalbarðsstrandarhrepps 2010-2014, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, þriðjudaginn 21. maí 2013 kl. 16:00.
Fundinn sátu: Helga Kvam formaður, Þorgils Guðmundsson varaformaður, Ragna Erlingsdóttir ritari og Jón Hrói Finnsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. 1305019 - Áherslur umhverfisnefndar í umhverfismálum 2013
Umræður um áherslur umhverfisnefndar.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að gert verði átak í umhverfismálum á Svalbarðseyri. Nefndin mælist til þess að fasteignaeigendum verði sent bréf og þeir hvattir til að taka til á lóðum sínum og mála hús sem ekki hafa verið máluð lengi. Sveitarstjóra falið að semja drög að bréfi.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að gert verði átak í að eyða njóla í landi sveitarfélagsins og meðfram vegum. Nefndin felur sveitarstjóra að ræða við Vegagerðina um njólaeyðingu og stórgrýti á vegsvæðum meðfram þjóðvegum. Einnig óskar umhverfisnefnd eftir því að rusladöllum meðfram þjóðveginum verði fjölgað og þeir tæmdir reglulega.
Umhverfisnefnd ítrekar jafnframt fyrri bókanir um fjölgun gáma á gámasvæðum til að endurspegla flokkunarkerfi það sem er við lýði í sveitarfélaginu.
2. 1305020 - Umhverfisvika í Svalbarðsstrandarhreppi 2013
Umræður um fyrirkomulag og tímasetningu árlegrar umhverfisviku Svalbarðsstrandarhrepps.
Ákveðið að umhverfisvikan verði 1. til 9. júní (vika 23) og að skipulögð hreinsun meðfram þjóðvegi 1 verði kl. 17-20 mánudaginn 3. júní. Landeigendur eru sérstaklega hvattir til að hreinsa til á landareignum sínum. Eins og undanfarin ár verður kerrum stillt upp í Laugartúni og Smáratúni og járnarusli og dekkjum safnað við heimreiðar að bæjum. Ákveðið að staðsetja gáma fyrir almennt rusl og garðaúrgang í Heiðarbyggð í umhverfisvikunni.
3. 1212003 - Ályktun Skógræktarfélags Íslands
Lagt fram til kynningar bréf Brynjólfs Jónssonar, fyrir hönd Skógræktarfélags Íslands þar sem tilkynnt er um ályktun sem samþykkti var á aðalfundi samtakanna 24.-26, september 2012, þess efnis að lúpínubreiður séu kjörlendi fyrir skógrækt og að fýsileika skógræktar til að vinna gegn útbreiðslu lúpínu.
4. 1302034 - Ástand gróðurs og umferðaröryggi
Lagt fram til kynningar bréf Árnýjar Ingvarsdóttur, fyrir hönd Umferðarstofu, frá 15. febrúar 2013, þar sem hún hvetur til þess að hugað verði að gróðri sem birgt getur sýn ökumanna á umferðarskilti og skert útsýni á götuhornum. Jafnframt hvetur hún til þess að lóðarhafar verði minntir á skyldur sínar hvað varðar snyrtingu gróðurs við gangstéttar, götur og gangstíga.
5. 1205005 - Matjurtagarðar
Áhugi íbúa á matjurtagörðum hefur verið kannaður. Nægur áhugi virðist vera fyrir hendi.
Tekið á dagskrá með samþykki allra fundarmanna.
Ákveðið að bjóða upp á 10 og 20 fm garða og að ekki verði tekið gjald fyrir garðana fyrsta árið þar sem um tilraun er að ræða.
6. 1305021 - Upprekstur á afrétt og viðhald fjallsgirðingar 2013
Umræður um ástand ógirtra heimalanda í Vaðlaheiði. Lögð fram bréf til landeigenda varðandi upprekstur og viðhald fjallsgirðinga frá 2011 og 2012.
Umhverfisnefnd leggur til að heimilað verði að upprekstur í ógirt heimalönd í Vaðlaheiði verði heimilaður eftir 20. júní vegna ástands gróðurs. Ekki verði heimilað að reka stórgripi í ógirt heimalönd fyrr en 5. júlí. Settur verði fyrirvari í bréf til landeigenda um að sleppa ekki búfénaði á fjall nema ástand gróðurs leyfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.