Umhverfis & Atvinnumálanefnd

6. fundur 13. júní 2016

Fundurinn var haldinn í fundarsal sveitarfélagsins 13.06.2016 kl.20:00

Mættir eru Starri Heiðmarsson aðalmaður, Hólmfríður Freysdóttir aðalmaður, Þorgils Guðmundsson aðalmaður, Aðalsteinn Bjarkason, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri.

Dagskrá:

1. Staðfesting á ákvörðun um leyfilega upprekstrardaga í Vaðlaheiði.

Nefndin staðfestir fyrri ákvörðun að upprekstrardagur sé 11 júní fyrir sauðfé en 18 júní fyrir hesta.

2. Framtíðarskipulag losunar á garð- og jarðefnaúrgangi sbr. 46. fundargerð sveitarstjórnar
frá 25.05.2016.
Nefndin leggur til að núverandi tippur verði lagaður og honum lokað. Umframefni verði komið fyrir austan við tippinn. Til nánustu framtíðar leggur nefndin leggur nefndin til að svæðið norðan við núverandi tipp verði notað og efnisflokkar betur aðskildir en nú er gert. Til lengri framtíðar leggur nefndin til að svæðið verði mótað í samræmi við hugmyndir Önju Müller á teikningu frá 22.8.2015.

3. Umgengni í sveitarfélaginu með sérstakri áherslu á rúlluplast.
Nefndin lýsir áhyggjum vegna fjúkandi rúlluplasts hjá nokkrum aðilum í sveitarfélaginu og hvetur hlutaðeigandi til að ganga vel um rúlluplastið og koma því í endurvinnslu. Nefndin beinir til sveitarstjórnar að bjóða fram vinnuskólann í hreinsunarátak gegn betri umgengni í framtíðinni.Nefndin hvetur íbúa sveitarfélagssins til að huga vel að ásýnd sveitarinnar og beinir til sveitarstjóra að auglýsa úrræði í Ströndungi.

4. Umgengni við tjarnir í eigu sveitarfélagsins einkum á varptíma.

Nefndin leggur til að lausaganga hunda í og við tjörnina verði bönnuð á varptíma frá 1. mai til 15. Júní.

5. Önnur mál. a) skógarkerfill í sveitarfélaginu
Nefndin hvetur til að stakar plöntur af skógarkerfli verði stúngnar upp og hvetjum alla íbúa til að herja á þennan ófögnuð. Nefndin leggur til að átak verði gert í eyðingu skógarkerfils á næsta ári og þá eitrað fyrir plöntunni áður en hún blómstrar næsta vor.

 

Fundi slitið. kl.22.01