Umhverfis & Atvinnumálanefnd

11. fundur 15. nóvember 2017

11. fundur umhverfis- og atvinnumálanefndar 2014-2018

Fundurinn var haldinn í fundarsal sveitarfélagsins 15.11.2017 kl. 20:00

Mættir voru Starri Heiðmarsson formaður, Hólmfríður Freysdóttir aðalmaður, Þorgils Guðmundsson aðalmaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri.

Gestur fundarins var Elísabet Ásgrímsdóttir

Dagskrá:

1. Sjálfbært samfélag, umhverfisstefna fyrir Svalbarðsströnd.

Elísabet Ásgrímsdóttir verkefnastjóri kemur á fundinn og fer yfir stöðu mála.

Nefndin leggur til að Staðardagskráin síðan 2006 verði lögð til grundvallar umhverfisstefnunni. Einnig mælir nefndin með að umhverfisstefnan verði markmiðsdrifin, þ.e. sett verði fram skýr markmið fyrir þá þætti stefnunnar sem auðvelt er að mæla. Annars er verkefnastjóra falið að halda áfram að móta stefnuna í samræmi við drög er hún kynnti á fundinum og halda nefndarmönnum upplýstum gegnum tölvupóst. Stefnt er að næsta fundi 13. desember.

 

2. Önnur mál. Engin slík

Fundi slitið kl. 21:44