Fundargerð
7.. fundur umhverfisnefndar Svalbarðsstrandarhrepps 2018-2022, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, 21. maí 2019 kl. 17:15.
Fundinn sátu: Elísabet Ásgrímsdóttir, Halldór Jóhannesson, Harpa Barkardóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Eva Sandra Bentsdóttir og .
Fundargerð ritaði: Björg Erlingsdóttir, Sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. |
Gámasvæðið, umgengni um það og bílar og ónothæf farartæki í almenningsrými. - 1610103 |
|
Umhverfisfulltrúi hefur merkt þau ökutæki sem ekki eru skráð og til stendur að fjarlægja þau tæki sem ekki er leyfi fyrir. Verið er að vinna að lagfæringum á Gámasvæði. |
||
Fulltrúi Heilbrigðiseftirlitsins merkti bifreiðar sem ekki eru á númerum á opnum svæðum innan þéttbýlis. Gert er ráð fyrir að ökutæki sem ekki eru á númerum verði fjarlægð að liðnum þeim fresti sem Heilbrigðiseftirlit gefur. Fresturinn hefur verið lengdur til 20. júní að ósk sveitarstjórnar. Formanni nefndarinnar falið að skrifa orðsendingu til íbúa varðandi geymslu/öryggi á kerrum í almennum bílastæðum, fyrir næsta Ströndung. |
||
2. |
Áskorun til umhverfis- og atvinnumálanefndar - 1905011 |
|
Áskorun til umhverfis- og atvinnumálanefndar varðandi plast, rusl og sérstök hvatning til bænda um hreinsun rúlluplasts í sveitarfélaginu. |
||
Ábending frá ferðaþjónustuaðila um rusl meðfram þjóðvegi, girðingar í lamasessi og vinnuvélum sem ekið er skítugum eftir þjóðveginum, lögð fram. Nefndin bendir á að farið var meðfram þjóðveginum og rusl hreinsað 18. maí. Nefndin leggur til við vinnuskóla að farnar verði tvær til þrjár ferðir í sumar og hreinsað til það sem til fellur og unnið með landeigendum að hreinsun. Svalbarðsstrandarhreppur er landbúnaðarsvæði og eðlilegt að bændur þurfi að ferðast með stór vinnutæki milli svæða og getur hlotist af því óþrifnaður. Girðingar meðfram þjóðvegi eru á ábyrgð landeigenda en unnið hefur verið að uppsetningu girðingar við gömlu þjóðleiðina síðustu ár og eftir er að setja upp girðingu frá Sigluvík og norður að Víkurskarði. |
||
3. |
2019 áherslur í umhverfismálum - 1810028 |
|
Farið yfir þau verkefni sem vinna á næstu misserin. |
||
Kortlagning er hafin á dreifingu kerfils og njóla. Íbúar voru duglegir við að láta vita af svæðum þar sem kerfill og njóli ná að festa rætur og eru hvattir til þess senda upplýsingar þannig að hægt sé að vinna á þessari óværu. Sláttur og umhirða á Svalbarðsströnd er hafin og fjöldi verkefna sem liggja fyrir næstu vikur. Skipt verður um jarðveg á svæðinu þar sem matjurtargarðar hafa verið og stefnt að því að svæðið verði tilbúið til notkunar sumarið 2020. Vinna er að hefjast við lagfæringar á Gámasvæði og á næstu dögum verður hafist handa við að planta gróðri í útiskólasvæði. Nefndin felur sveitarstjóra að finna lausn á gúmmíi á sparkvelli, hvort hægt sé að skipta um. Vinnuskóla falið að skipuleggja gróðursetningu í mön fyrir ofan gámasvæði, 200 víðiplöntuur ættu að þétta þann gróður sem fyrir er. |
||
4. |
Upplýsingaskilti við þjóðveg-Vaðlaheiðargöng - 1901006 |
|
Farið yfir stöðu mála |
||
Framundan er gerð samnings við landeiganda um reitinn í Vaðlaheiði sem nýta á sem áningastað/útsýnispall. Verkefnið er komið vel á veg, viðauki fékkst til hönnunarvinnu og styrkur frá sjóði Brunabótar. Fundur verður haldinn með ferðaþjónustuaðilum í Svalbarðsstrandarhreppi og Grýtubakkahreppi ásamt fulltrúum Markaðsstofu Norðurlands á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að hönnun og fjárhagsáætlun liggji fyrir í lok sumars. Sótt verður um styrk til framkvæmda í Uppbyggingarsjóð ferðamannastaða árið 2020. |
||
5. |
Svalbarðsstrandarhreppur - vortiltekt - 1904002 |
|
Tiltektardagur var laugardaginn 18. maí. Farið yfir þau verkefni sem unnin voru. |
||
Vortiltekt var 18. maí. Góð þátttaka var og mikið rusl tínt. Gengið var frá göngum að Víkurskarði auk þess sem íbúar í Vaðlabyggð fór um nágrenni sitt á sunnudeginum. Grillaðar voru pylsur og sundlaugin opin í lok vinnudags. |
||
6. |
Heimasíða Svalbarðsstrandarhrepps - 1811010 |
|
Samið hefur verið við fyrirtækið Stefnu um endurnýjun heimasíðu. Farið yfir þau verkefni sem framundan eru og vinnufyrirkomulag. |
||
Starfsmaður í grunnskóla ásamt formanni nefndarinnar og sveitarstjóra hafa unnið að uppsetningu nýrrar heimasíðu. Auður Hafþórsdóttir hefur haldið utanum veftré og unnið góða vinnu. Efnt var til ljósmyndakeppni í maí og var þátttakan mjög góð. Myndirnar verða aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins. |
||
7. |
Hundagerði á Svalbarðseyri - 1905010 |
|
Tillaga íbúa að hundagerði á Svalbarðseyri |
||
Sveitarstjóra hefur verið falið að finna svæði sem gæti hentað sem hundagerði og fundið út kostnað vegna uppsetningar. Nefndin fagnar tillögunni og frumkvæði sendanda, Gunnars Bjarka Hilmarssonar sem er í 6. bekk Valsárskóla. Hilmar Dúi vék af fundi undir þessum lið. |
||
8. |
Gagnaver á starfssvæði Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar - 1905004 |
|
Erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar kynnt. |
||
Erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar lagt fram til kynningar. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.