Umhverfis & Atvinnumálanefnd

27. fundur 17. nóvember 2022 kl. 13:45 - 15:30 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Elísabet Ásgrímsdóttir formaður
  • Inga Margrét Árnadóttir
  • Andri Már Þórhallsson
Starfsmenn
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Fjárhagsáætlun 2023-2026 - 2208014

 

Farið yfir samþykkta gjaldskrá sveitarstjórnar sem og framtíðaráform um meðhöndlun sorps í fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-26.

 

Umhverfis - atvinnumálanefnd fagnar því að sveitarstjórn tekur jákvætt í breytingar á gámasvæði Svalbarðseyrar á næsta ári 2023. Umhverfis- og atvinnumálanefnd mun vinna drög að tillögu að breytingu gámasvæðisins til að leggja fyrir 103. fund sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps.

 

Samþykkt

 

   

2.

Atvinnumál í sveitarfélaginu. - 2209006

 

Skrifstofurstjóri leggur fram tölur um atvinnuþáttöku í sveitarfélaginu, fjölda fyrirtækja sem starfa í sveitarfélaginu og fer yfir svæði sem eru skipulögð undir atvinnustarfsemi.

 

Lagt fram til kynningar

 

Samþykkt

 

   

3.

Nýsköpun í Svalbarðsstrandarhreppi - 2211004

 

Farið yfir þær leiðir sem aðilum í Svalbarðsstrandarhreppi stendur til boða í málefnum nýsköpunar.

 

Nýsköpunarmöguleikar innan Svalbarðsstrandarhreppi ræddir. Umhverfis- og atvinnumálanefnd hvetur íbúa Svalbarðsstrandarhrepps til að senda erindi inn á fundi nefndarinnar. Umhverfis- og atvinnumálanefnd stefnir einnig að leita til íbúa til að kanna hvar sóknarfæri eru innan Svalbarðsstrandarhrepps.

 

Samþykkt

 

   

4.

Fræðsluefni frá Umhverfis - og atvinnumálanefnd - 2211005

 

Umhverfis-og atvinnumálanefnd fer yfir kosti um hvernig best er að miðla kynningarefni til íbúa Svalbarðsstrandarhrepps.

 

Umhverfis- og atvinnumálanefnd ákveður að stofna tilkynningarsíðu á facebook til að miðla upplýsingum til íbúa.

 

Samþykkt

 

   

5.

Umhverfisviðurkenning 2021 - 2202009

 

Dagsetning ákveðin um hvenær skuli afhenda Umhverfisverðlaunin 2021 og 2022.

 

Umhverfis - og atvinnumálanefnd leggur til að verðlaunin fyrir 2021 og 2022 verði afhent á fyrsta fundi umhverfis- og atvinnumálanefndar árið 2023. Nefndin auglýsir jafnframt eftir tilnefningum frá íbúum Svalbarðsstrandarhrepps til Umhverfisverðlauna 2022 og felur skrifstofustjóra að birta auglýsingu þess efnis á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps.

 

Samþykkt

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30.