Umhverfis & Atvinnumálanefnd

38. fundur 27. nóvember 2024 kl. 13:00 - 15:00 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Elísabet Inga Ásgrímsdóttir formaður
  • Inga Margrét Árnadóttir
  • Andri Már Þórhallsson
Starfsmenn
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

1.

Sorphirða - 2210004

 

Farið yfir sorphirðu ársins 2024 og framtíðaráform í tengslum við Borgað þegar hent er stefnuna.

 

Farið yfir sorphirðutölur 2024. Áhrif gjaldskrárbreytinga vegna innleiðingar borgað þegar hent er sýnir að beinn kostnaður sveitarfélagsins hefur minnkað í málaflokknum.

Lagt fram til kynningar áætlun sveitarstjórnar um þær breytingar sorphirðu sem verða á árinu 2025. Farið yfir möguleika á að fara í breytingar á sorphirðutíðni í kjölfar innleiðingar þriggja tunnu kerfis í Svalbarðsstrandarhreppi. Nefndin rýndi í þá valmöguleika sem íbúum stendur til boða við meðhöndlun lífræns úrgangs önnur en að sækja upp við húsvegg. Hugmyndir um að bjóða upp á slíka fræðslu fyrir íbúa sveitarfélagsins í kjölfar breytinga á sorphirðukerfinu.

 

Samþykkt

 

   

2.

Íbúafundur - 1804011

 

Farið yfir möguleg fræðsluerindi sem hægt verði að halda 2025 á vegum umhverfis- og atvinnumálanefndar.

 

Umhverfis- og atvinnumálanefnd stefnir á að umræðufund um sorphirðu í hreppnum ásamt fræðslu fyrri hluta árs. Að auki verða auglýst fræðsluerindi tengd umhverfisvikunni sem haldin er í maí á hverju ári.

 

Samþykkt

 

   

3.

Atvinnumál í sveitarfélaginu. - 2209006

 

Farið stöðu atvinnulífs í Svalbarðsstrandarhreppi.

 

Lagt fram til kynningar.

Atvinnuástand í Svalbarðsstrandarhreppi er mjög stöðugt.

 

Samþykkt

 

   

4.

Hlutverkaskipan nefndar 2022-2026 - 2411006

 

Farið yfir hlutverkaskipan innan nefndarinnar í ljósi þess að Elísbet Inga Ásgrímsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem formaður nefndarinnar.

 

Elísabet Inga Ásgrímsdóttir óskar eftir því að hætta sem formaður í nefndinni. Nefndin leggur til að Inga Margrét Árnadóttir taki við af Elísbetu.

 

Samþykkt

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00.