Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á 163. fundi sínum 9. desember 2025 að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2025–2037 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulag er stefnumótandi áætlun fyrir allt sveitarfélagið þar sem mörkuð er stefna um m.a. landnotkun, byggðaþróun, samgöngur, þjónustukerfi og umhverfismál og varðar hún hagsmuni allra íbúa, landeigenda og fyrirtækja í sveitarfélaginu.
Skipulagstillagan er aðgengileg í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 123/2024, á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps og á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri. Fyrirspurnir um málið má senda á sbe@sbe.is
Ábendingar og athugasemdir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 29. apríl 2026.
Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037. Greinargerð - stefnumörkun útg. 11.03.2026
Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037. Yfirlitsmynd með skýringum
Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037. Flokkun ræktarlands
Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037. Vegir í náttúru Íslands
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801