Drög að aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037

Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á 151. fundi sínum þann 7. maí 2025 að vísa skipulagstillögu á vinnslustigi vegna endurskoðunar Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 í kynningu samkvæmt 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Lögð er fram skipulagstillaga á vinnslustigi að aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið Svalbarðsstrandarhrepp byggð m.a. á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020. Sett er fram stefna til ársins 2037 um landnotkun í sveitarfélaginu, þróun byggðar, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál. Stefnan varðar hagsmuni allra íbúa, landeigenda og fyrirtækja sem í sveitarfélaginu eru. Aðalskipulag er mikilvægt stjórntæki fyrir þróun samfélagsins og aðkoma íbúa og annarra hagsmunaaðila stuðlar að því að niðurstaða sé fengin á lýðræðislegan og gagnsæjan hátt. Eftir að aðalskipulag hefur verið staðfest verða allar framkvæmdir að vera í samræmi við þá stefnu sem hér er lögð fram.

Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu, 606 Akureyri, milli 23. maí og 20. júní 2025, á heimasíðu sveitarfélagsins www.svalbardsstrond.is og á vefsíðu Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 123/2024. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugsemdir við skipulagslýsinguna til 20. júní 2025. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar bs.

Hér má lesa drög að aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037