Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037 - Auglýsing skipulagstillögu

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á 163. fundi sínum 9. desember 2025 að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2025–2037 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulag er stefnumótandi áætlun fyrir allt sveitarfélagið þar sem mörkuð er stefna um m.a. landnotkun, byggðaþróun, samgöngur, þjónustukerfi og umhverfismál og varðar hún hagsmuni allra íbúa, landeigenda og fyrirtækja í sveitarfélaginu.

Skipulagstillagan er aðgengileg í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 123/2024, á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps og á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri. Fyrirspurnir um málið má senda á sbe@sbe.is

Ábendingar og athugasemdir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 29. apríl 2026.

Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037.  Greinargerð - stefnumörkun útg. 11.03.2026

Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037.  Yfirlitsmynd með skýringum

Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037.  Flokkun ræktarlands

Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037.  Vegir í náttúru Íslands