Auglýsing um skipulagsmál í Svalbarðsstrandarhreppi - Nýtt deiliskipulag

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur samþykkt að kynna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í landi Geldingsár, í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Geldingsá – deiliskipulag íbúðarlóða
Tillagan tekur til um 2 ha spildu úr landi Geldingsár, vestan Geldingsárvegar og norðan Árholts. Deiliskipulagið felur í sér skipulag sex íbúðarlóða fyrir einbýlishús. Gert er ráð fyrir aðkomuvegi frá Geldingsárvegi, byggingarreitum innan lóða, gönguleiðum og sameiginlegu hreinsivirki fráveitu. Tillagan er í samræmi við rammahluta Aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði.

Tillagan er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins og í Skipulagsgátt HMS undir málsnúmeri 678/2026. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við tillöguna. Athugasemdir skulu berast í gegnum Skipulagsgáttina.

Umsagnarfrestur er til og með 19.06.2026

Opið hús verður haldið á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Skólatröð 9 þann 03.06.2026 kl. 10-12, þar sem tillagan mun liggja frammi.

F.h. Svalbarðsstrandarhrepps,

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Geldingsá - greinargerð deiliskipulags