Fundarboð 152. fundur 3.06.25

152. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2022-2026 verður haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, þriðjudaginn 3. júní 2025 kl. 14:00. 

Dagskrá:

Almenn mál

1. 2502003 - Vaðlaborgir A L198869 - deiliskipulagsbreyting

Á 147. fundi sveitarstjórnar þann 25. febrúar 2025 var samþykkt að gerð væri óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi sem vísað var í grenndarkynningu. Átta athugasemdir/samþykki bárust á grenndarkynningartímabili sem liggur nú fyrir fundi sveitarstjórnar.

 

2. 2505012 - Vaðlaborgir A - frístundabyggð - beiðni um breytingu á deilskipulagi

Erindi frá Landslagi, f.h. landeiganda Árvegs ehf, þar sem óskað er eftir heimild Svalbarðsstrandarhrepps til að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi sem felst í því að bæta við 5 lóðum fyrir frístundahús inni í skógarlundinum ofan núverandi lóða en fella út 4 óbyggðar lóðir efst á skipulagssvæðinu.

 

3. 2505013 - Vaðlaborgir B - íbúðarbyggð - beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag

Erindi frá Landslagi, f.h. landeiganda Árvegs ehf, þar sem óskað er eftir heimild Svalbarðsstrandarhrepps til að hefja vinnu við deiliskipulag fyrir svæðið þar sem gert verður ráð fyrir 8-10 íbúðarhúsum, nánari upplýsingar í meðfylgjandi erindi. Meðfylgjandi er einnig skipulagslýsing vegna vinnu við deiliskipulag sem óskað er eftir að verði tekin fyrir á sama fundi sveitarstjórnar og afgreidd þar í lögbundið ferli.

 

4. 2504011 - Lækjartún 10 L239175 - Umsókn um breytingu á íbúðafjölda

Erindi er frestað var á 151. fundi sveitarstjórnar, frá lóðarhafa, sem óskar eftir breytingu á íbúðafjölda í Lækjartúni 10. Sótt er um að breyta einbýlishúsalóð í parhúsalóð.

 

5. 2505006 - Þórsmörk 3 - Umsögn vegna umsóknar fyrir tjaldsvæði

Erindi frá lóðarhafa, um starfsleyfi fyrir tjaldsvæði vegna sölu á gistingu í fjórum húsbílum í landi Þórsmerkur 3 L222405 á Svalbarðsströnd. Bílarnir eru tengdir við vatns- og fráveitu. Aðstaðan uppfyllir þær kröfur sem HNE ber að gera til starfsemi af þessu tagi.

 

6. 2308006 - Heiðarsól - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi

Erindi frá landeiganda, þar sem óskað er eftir að framkvæmdaleyfi vegna vegagerðar við Heiðarsól, samkvæmt gildandi deiliskipulagi Sólbergs í Svalbarðsstrandarhreppi. Meðfylgjandi eru uppfærð gögn varðandi erindið.

 

7. 2505014 - Geldingsá lóð L198602 - umsókn um breytta notkun lóðar

Erindi frá Gunnhildi Ingólfsdóttur, ósk um að breyta notkun lóðar úr frístundalóð í íbúðarlóð.

 

8. 2203012 - Kosning oddvita og varaoddvita

2025 Kosning oddvita og varaoddvita skal samkvæmt samþykktum um stjórn og fundarsköp Svalbarðsstrandarhrepps fara fram árlega. Skulu þeir kjörnir til eins árs í senn, að öðrum kosti skal kjörtímabil þeirra vera hið sama og sveitarstjórnar.

 

9. 2505008 - Fyrirspurn til sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps varðandi útilistaverk

Erindi frá Þórhalli Ingasyni, Ósk um að sveitarfélagið þiggji að gjöf og til varðveislu útilistaverk sem er á teikniborðinu og heitir Vaðlaheiðarvegamálaverkfærageymslulyklakippuhringur. Óska staðsetning er útsýnisplanið við þjóðveg númer 1 gegnt Akureyri neðan Halllands. Verkið og nafngiftin hafa skírskotun í nær hundrað ára sögu og kveðskap sem með seinni tíma viðaukum telst með lengstu ef ekki lengsta orð íslenskrar tungu í dag.

 

10. 2505015 - Erindi til sveitarstjórnar vegna úthlutunar lóða

Erindi frá Helga Viðari Tryggvasyni og Önja Müller, vegna úthlutunar lóða Bakkatúns 23 og Lækjatúns 10.

 

11. 1407092 - Flugklasinn 66N

Erindi frá Flugklasanum Air 66, áskorun til stjórnvalda.

 

12. 2105003 - Upprekstur á afrétt

Upprekstur á afrétt 2025.

 

13. 2505009 - 80. ára afmælisráðstefna 11. júní 2025.

Erindi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, 80. ára afmælisráðstefna, 11. júní 2025.

 

Fundargerðir til kynningar

14. 2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 93, 94 og 95 lagðar fram til kynningar. Eftirfarandi mál var tekið fyrir tengt Svalbarðsstrandarreppi. Leifshús - Breyting og viðbygging hlöðu og fjárhúss - 2504017 Erindi dagsett 09.04.2025 þar sem Brynjólfur Árnason f.h. Stefáns Tryggvasonar sækir um byggingarleyfi vegna breytinga hlöðu í listsmiðju á lóðinni Leifshús, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir frá Brynjólfi Árnasyni. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Svalbarðseyrarvegur 7b (Nóatún) L153012 - Umsókn um niðurrif - 2505028 Erindi dagsett. 20.05.2025 þar sem Ásgeir Högnason f.h. Gvendar á Eyrinni ehf. sækir um leyfi fyrir niðurrifi á einbýlishúsi á lóðinni Svalbarðseyrarvegi 7b (Nóatún), Svalbarðsstrandarhreppi. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.

Heiðarbyggð 25 L204849 - Frístundarhús - 2505011 Erindi dagsett 03.05.2025 þar sem Vigfús Halldórsson f.h. Árholt ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir frístundarhúsi á lóðinni Heiðarbyggð 25, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir frá Vigfúsi Halldórssyni. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

15. 2201013 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022

Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 978 og 979 lagðar fram til kynningar.

 

16. 2202008 - Hafnarsamlag fundargerðir

Fundargerðir stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands nr. 295, 296 og 297 lagðar fram til kynningar.

 

17. 2504007 - Fundargerð fulltrúaráðsfundar 19.03.2025

Fundargerð fulltrúaráðs EBÍ og nýjar samþykktir lagðar fram til kynningar.

 

18. 2202007 - Fundargerðir stjórnar Norðurorku

Fundargerð stjórnar Norðurorku nr. 310 lögð fram til kynningar.

 

19. 2208013 - Fundargerðir stjórnar SSNE

Fundargerð stjórnar SSNE nr.73 lögð fram til kynningar.

 

20. 2505010 - Þinggerð ársþings SSNE, 2025

Þinggerð ársþings SSNE 2025 lögð fram til kynningar.

 

 

 

Aðalmenn eru beðnir að láta vita af forföllum í tíma svo hægt sé að boða varamenn.

 

Svalbarðseyri 30.05.2025,

Gestur Jensson Oddviti.