Opinn íbúafundur með innviðaráðherra 12. ágúst

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, fjarskipti og stafræna innviði. Fundirnir eru opnir öllum og hægt að skrá sig hér

12. ágúst verður fundur á Múlabergi á Akureyri kl. 16.45.

Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir "grænbók" og drög að stefnu "hvítbók" eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.

Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - irn@irn.is