Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 26. maí 2026 að vísa tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B í kynningarferli skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagstillagan nær yfir um 3,5 ha svæði í landi Vaðlaborga B (L198870) neðan Veigastaðavegar en skipulagssvæðið er á skilgreindu íbúðarsvæði ÍB19 í Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps. Í tillögunni eru afmarkaðar lóðir og byggingarreiti fyrir 6 íbúðarhús og yrði aðkoma að íbúðarsvæðinu frá Veigastaðavegi.
Skipulagstillagan er aðgengileg á opnu húsi á skrifstofu SBE, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, þann 16. júní nk. milli kl. 12 og 15, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.svalbardsstrond.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1123/2025.
Hægt er að skila inn athugasemdum um málið til 30. júní nk. á vef Skipulagsgáttar. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801