Íbúafundur um sameiningarmál

Svalbarðsstrandarhreppur vinnur að greiningu sameiningarvalkosta. Markmið verkefnisins er að greina styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri ef til sameiningar sveitarfélagsins kemur. Í því felst jafnframt að greina sameiningarvalkosti.

Boðað er til íbúafundar þriðjudaginn 30. nóvember kl. 17:00-18:00 í Íþróttasal Valsárskóla. Á fundinum verður kynning á verkefninu og leitað sjónarmiða íbúa.

Hugað verður vel að sóttvörnum og þátttakendur beðnir um að skrá þátttöku HÉR. Gott pláss verður milli sæta og kvenfélagskonur aðstoða með kaffiveitingar. Boðið er uppá barnagæslu.

  • Spurt verður hvort Svalbarðsstrandarhreppur eigi að hefja sameiningarviðræður? Ef svo er, hvaða valkostir ættu að vera í forgangi?
  • Að lokum hver ættu að vera áhersluatriði Svalbarðsstrandarhrepps í viðræðum?

Fundinum verður einnig streymt á Facebooksíðu Svalbarðsstrandarhrepps.

Á fundinum notum við rafrænt samráðskerfi svo allir sitji við sama borð, þ.e. þeir sem mæta á fundarstað og þeir sem fylgjast með í streymi. Auk þess verður boðið upp á spurningar og ábendingar úr sal.

Til að taka þátt á menti.com þarf að hafa síma, snjalltæki eða tölvu og fara inn á síðuna menti.com. Slá þar inn töluröð sem gefinn verður upp á fundinum og þá opnast samráðskerfið.

Með kveðju
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps