Sunnuhlíð, Svalbarðsstrandarhreppi – auglýsing skipulagstillögu vegna breytingar á aðalskipulagi

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 30. janúar sl. að vísa skipulagstillögu, vegna breytingar á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að skilgreint yrði um 3,2 ha svæði í landi Sunnuhlíðar (L152940) með landnotkuninni frístundabyggð (F12) sem í gildandi aðalskipulagi er skilgreint sem landbúnaðarsvæði (L3). Þegar eru tvö frístundahús á jörðinni en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í fjögur. Fyrirhuguð frístundahús yrðu í nánd við núverandi hús og myndu nýta sama aðkomuveg og fyrir er.

Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu, 606 Akureyri, milli 22. mars og 3. maí 2024, á heimasíðu sveitarfélagsins, svalbardsstrond.is og á vef Skipulagsgáttar, skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 702/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til 3. maí 2024. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Aðalskipulagsuppdráttur Sunnuhlíð