Vaðlaborgir B íbúðarsvæði, Svalbarðsstrandarhreppi – auglýsing deiliskipulagstillögu

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 18. ágúst 2026 að vísa tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B í auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagssvæðið nær yfir um 3,5 ha í landi Vaðlaborga B (L198870) neðan Veigastaðavegar en skipulagssvæðið er á skilgreindu íbúðarsvæði ÍB19 í Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps og í rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði og verður farið eftir þeim skilmálum sem settir eru fram í rammahlutanum. Í tillögunni eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir 6 íbúðarhús og yrði aðkoma að íbúðarsvæðinu frá Veigastaðavegi. Sjá uppdrátt hér

Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu SBE, Skólatröð 9, Eyjafjarðarsveit, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.svalbardsstrond.is og á vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1123/2025. Hægt er að skila inn athugasemdum um málið til 21. nóvember nk. á vef Skipulagsgáttar. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is

Tillögu má sjá hér