Geldingsá, Svalbarðsstrandarhreppi – tillaga að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 vegna íbúðarsvæða í landi Geldingsár. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að ný íbúðarsvæði ÍB23, ÍB24 og ÍB25 eru skilgreind í landi Geldingsár og verður heimilt að reisa á svæðunum alls 15 ný íbúðarhús til viðbótar við tvö sem fyrir eru. Breytingartillagan verður til sýnis á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhepps milli 1. október og 12. nóvember 2018 og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík. Tillagan er einnig til sýnis á heimasíðu Svalbardsstrandarhrepps, svalbardsstrond.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til mánudagsins 12. nóvember 2018. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 601 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið postur@svalbardsstrond.is.

Tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis ÍB25 í landi Geldingsár, Svalbarðsstrandarhreppi. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 28. júní 2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis ÍB25 í landi Geldingsár skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í skipulagstillögunni felst heimild til byggingar 6 einbýlishúsa á skipulagssvæðinu og er aðkoma að húsunum um nýjan veg sem tengist Geldingsárvegi. Tillagan liggur frammi á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps milli 1. október og 12. nóvember 2018 og á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps, svalbardsstrond.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til mánudagsins 12. nóvember 2018. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 601 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið postur@svalbardsstrond.is.

Auglýsing

Tillaga að aðalskipulagi

Tillaga að deiliskipulagi

Skipulags- og byggingarfulltrúi