
Álfaborg og Valsárskóli eru á Svalbarðseyri við austanverðan Eyjafjörð. Þaðan eru um 12 kílómetrar til Akureyrar. Skólahverfið á Svalbarðsströnd liggur frá Veigastöðum í suðri til Garðsvíkur í norðri.
Leikskólinn Álfaborg og grunnskólinn Valsárskóli starfa saman báðum skólunum til hagsbóta. Auk þess er í húsnæði Valsárskóla starfrækt frístundaheimili fyrir nemendur í 1. - 4. bekk og ber það nafnið Vinaborg. Árið 2016 bættist Tónlistaskóli Svalbarðsstrandar við sem sameinaðist síðan Tónlistaskóla Eyjafjarðar árið 2021.
Í skólum Svalbarðsstrandarhrepps eru nemendur, starfsfólk og foreldrar ein liðsheild og einkennist starfið af umhyggju, virðingu og gleði. Skólarnir leggja metnað í allt starf sitt og keppa að því að undirbúa nemendur sem best fyrir framtíðina.
Skólastjóri Álfaborgar er Guðrún Hallfríður Björnsdóttir gudrun@svalbardsstrond.is
Skólastjóri Valsárskóla er María Aðalsteinsdóttir maria@svalbardsstrond.is
Þann 1. janúar 2022 tóku í gildi ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Meginmarkmið laganna er að búa til umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
Nánar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna má lesa á heimsíðu skólanna.
Efni yfirfarið 2.03.26