Útiskólinn er hugsaður sem ævintýraleiðangur fyrir börn, um umhverfi okkar og náttúruna hér á Svalbarðsströnd.
Börn sem fædd eru árið 2015 eru velkomin en forráðamenn þurfa að fylgja þeim í Útiskólann.
Skólinn fer fram þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í júlí milli klukkan 13:00 og 16:15. Ef dagskrá breytist er það auglýst sérstaklega. Börn koma klædd eftir veðri og hafa með sér nesti.
Við hittumst í Valsárskóla, borðum nestið okkar í leiðangrinum og ljúkum ævintýraleiðöngrum í Valsárskóla, nema annað sé tilkynnt. Dagskrá getur breyst eftir veðri.
Sumarnámskeið Húlladúllunnar er fimm daga námskeið og er í boði fyrir aldurshópana 6-9 ára og 10 ára og eldri.
SKRÁ ÞARF Á NÁMSKEIÐIN OG VIÐ ÓSKUM EFTIR ÞVÍ AÐ FORRÁÐAMENN SKRÁI BÖRN Í SÍÐASTA LAGI, VIKU ÁÐUR EN FARIÐ ER. VIÐ ÞURFUM T.D. AÐ VITA HVERSU STÓRA RÚTU ÞARF EÐA HVORT VIÐ ÞURFUM AÐ FJÖLGA STARFSMÖNNUM OG ÞVÍ GOTT AÐ ÞIÐ PANTA EINS FLJÓTT OG HÆGT ER.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801